Til umsagnar
17.7.–4.9.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-136/2026
Birt: 17.7.2026
Fjöldi umsagna: 0
Annað
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Orkumál
Raforkueftirlitið kynnir til samráðs fyrstu fjóra kafla að leiðbeiningum um framkvæmd ákvæða raforkulaga um innherjaupplýsingar, birtingu innherjaupplýsinga, innherjasvik og markaðsmisnotkun.
Leiðbeiningunum er ætlað að stuðla að samræmdum skilningi á þeim skyldum sem hvíla á markaðsaðilum samkvæmt raforkulögum og skýra hvernig Raforkueftirlitið hyggst túlka og beita viðkomandi ákvæðum. Við gerð leiðbeininganna hefur meðal annars verið stuðst við leiðbeiningar ACER um REMIT, að teknu tilliti til íslenskrar löggjafar og sérstöðu íslenska raforkumarkaðarins.
Í þessum áfanga eru birtir eftirfarandi kaflar leiðbeininganna:
1. Skilgreiningar og gildissvið V. kafla raforkulaga
2. Innherjaupplýsingar
3. Skyldan til að birta innherjaupplýsingar opinberlega
4. Bann við innherjasvikum og ólögmætri miðlun innherjaupplýsinga
Leiðbeiningarnar fela ekki í sér sjálfstæðar skyldur umfram þær sem leiða af raforkulögum og stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra. Þeim er ætlað að veita markaðsaðilum og öðrum sem reglurnar varða nánari leiðsögn um túlkun og framkvæmd gildandi reglna.
Leiðbeiningarnar verða birtar til samráðs í fleiri áföngum eftir því sem vinnu við þær miðar áfram.
Raforkueftirlitið óskar eftir athugasemdum við efni og framsetningu leiðbeininganna, þar á meðal hvort þær séu nægjanlega skýrar og veiti markaðsaðilum fullnægjandi leiðbeiningar um framkvæmd laganna. Sérstaklega er óskað eftir ábendingum um atriði sem kunna að þarfnast frekari skýringa eða nánari umfjöllunar.
Athugasemdir við drögin skulu berast eigi síðar en 4. september 2026.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa orkumála
urn@urn.is