Til umsagnar
15.7.–5.8.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-134/2026
Birt: 15.7.2026
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Framhaldsskólastig
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um breytingar á lögum um framhaldsskóla.
Nemendahópur framhaldsskóla er afar fjölbreyttur og þarfir nemenda ólíkar. Með gildistöku laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, var stigið mikilvægt skref í átt að fjölbreyttara námsframboði og auknum sveigjanleika. Þróun framhaldsskólastarfs og fengin reynsla sýna hins vegar að þörf kann að vera á að skýra og styrkja lagaumgjörðina frekar, einkum að því er varðar námslok og stöðu tiltekinna námsúrræða.
Fyrirhugaðar breytingar stefna í fyrsta lagi að því að innleiða ný námslok á framhaldsskólastigi sem eru sérstaklega hugsuð fyrir nemendur sem þurfa einstaklingsmiðaðra, hagnýtara og sveigjanlegra nám en núverandi námslok gera ráð fyrir. Nýjum námslokum er ætlað að auka virkni nemenda og styrkja tengsl náms við atvinnulíf og tryggja að nemendur sem ekki stefna að hefðbundnum námslokum eða þurfa aukinn stuðning í námi eigi raunhæfa leið til námsloka við hæfi.
Í öðru lagi stefna fyrirhugaðar breytingar að því að skýra hlutverk starfsbrauta fyrir nemendur með fötlun, skilyrði fyrir innritun á þær og stöðu þeirra í lögum. Þörf er á að uppfæra löggjöfina þannig að hún endurspegli betur raunverulega framkvæmd.
Í þriðja lagi miða fyrirhuguð áform að því að marka fjarnámi skýrari lagaumgjörð. Í gildandi lögum um framhaldsskóla er ekki fjallað um fjarnám með þeim hætti sem núverandi framkvæmd kallar á auk þess sem aðsókn í fjarnám hefur aukist verulega á undanförnum árum. Með breytingunum er stefnt að því að kveða skýrar á um framkvæmd fjarnáms á framhaldsskólastigi, þ. á m. ábyrgð skóla og stöðu nemenda.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa framhaldsskóla og framhaldsfræðslu
mrn@mrn.is