Til umsagnar
14.7.–14.8.2026
Í vinnslu
15.8.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-133/2026
Birt: 14.7.2026
Fjöldi umsagna: 4
Áform um lagasetningu
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Örorka og málefni fatlaðs fólks
Með hinni fyrirhuguðu lagasetningu er stefnt að auknum skýrleika sem og að breyta þeim ákvæðum laganna efnislega sem ekki þykja hafa náð þeim markmiðum sem að var stefnt með nýju örorkulífeyriskerfi.
Gert er ráð fyrir að í fyrirhuguðu frumvarpi verði lagt til að bætt verði við ákvæði/ákvæðum í lög um almannatryggingar þar sem kveðið verði á um svokallað grunnmat við mat á rétti einstaklinga til sjúkra- og endurhæfingargreiðslna. Þá er gert ráð fyrir kveðið verði skýrar en verið hefur samkvæmt gildandi lögum á um tímamörk réttindamyndunar til örorku- og hlutaörorkulífeyris, afmörkun á áhrifum erlends örorkumats og aðgreiningu milli sama tryggingatilviks og nýs tryggingatilviks þegar örorka hefur þegar við metin í öðru ríki.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa vinnumarkaðar og almannatrygginga
frn@frn.is