Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 14.–29.7.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-132/2026

Birt: 14.7.2026

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fjölskyldumál

Áform um frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum

Málsefni

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir áform um lagasetningu er varðar frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum.

Nánari upplýsingar

Áformunum er ætlað að bregðast við vaxandi hættu sem börnum og ungmennum stafar af ótímabærri, óheftri og áráttukenndri notkun samfélagsmiðla með því að kveða á um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum.

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur unnið markvisst að því að leita leiða til að auka öryggi barna og ungmenna á netinu. Vaxandi þekking liggur fyrir um þá áhættu sem getur fylgt notkun barna á samfélagsmiðlum, meðal annars vegna skaðlegs efnis, áreitni, félagslegs samanburðar, persónusniðinnar dreifingar efnis, umfangsmikillar gagnasöfnunar og hönnunar miðlanna sem getur ýtt undir langvarandi eða áráttukennda notkun barna.

Núgildandi lagaumhverfi á Íslandi felur ekki í sér skýrt almennt aldursviðmið sem takmarkar aðgang barna að samfélagsmiðlum. Í framkvæmd byggir aðgangur barna að þessum miðlum að miklu leyti á skilmálum tæknifyrirtækjanna sjálfra og sjálfskráðum aldri notenda þar sem miðað er við 13 ára aldur. Mennta- og barnamálaráðuneytið telur brýnt að bregðast við því með skýrum lagareglum um aldurstakmörk til að tryggja börnum þá vernd sem velferð þeirra krefst í hinu stafræna umhverfi. Markmið fyrirhugaðrar lagasetningar er að draga úr áhættu sem getur fylgt ótímabærri og óheftri notkun barna að samfélagsmiðlum og vernda þau gegn skaðlegu efni, áreitni og neikvæðum samskiptum.

Áformað er að leggja fram frumvarp til sérlaga þar sem miðað verði við að börn fái aðgang að samfélagsmiðlum 1. janúar árið sem barn verður 15 ára. Ekki gert ráð fyrir því að brot gegn þeirri reglu varði refsingu heldur verði það sett fram sem almennt verndarákvæði líkt og ákvæði XVII. kafla barnaverndarlaga nr. 80/2002. Fyrirhugaðri lagasetningu er þannig ætlað að hafa almenn verndaráhrif og styðja við uppeldishlutverk foreldra og forsjáraðila þegar kemur að aðgengi barna að samfélagsmiðlum. Verði frumvarpið að lögum áformar ráðuneytið jafnframt að standa fyrir vitundarvakningu og aukinni fræðslu um öryggi barna og ungmenna á samfélagsmiðlum í samvinnu við helstu hagaðila.

Ráðuneytið hefur þegar haft samráð við börn, ungmenni og ýmsa hagaðila vegna málsins. Í því samráði hefur komið fram skýr vilji til að efla vernd barna í stafrænu umhverfi en jafnframt að mikilvægt sé að lausnir verði mótaðar með hliðsjón af réttindum barna, meðalhófi, fræðslu, miðlalæsi og ábyrgð foreldra, stjórnvalda og þjónustuveitenda.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa barnamála

mrn@mrn.is