Til umsagnar
13.7.–21.8.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-131/2026
Birt: 13.7.2026
Fjöldi umsagna: 10
Áform um lagasetningu
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Húsnæðis- og skipulagsmál
Fyrirhugaðar eru breytingar á lögum um mannvirki sem liður í heildstæðri endurskoðun á stjórnsýslu mannvirkjamála með einfaldari byggingarreglugerð, skilvirkara eftirliti og og aukinni neytendavernd.
Með breytingum er stutt við endurskoðun og einföldun byggingarreglugerðar þar sem áhersla verður lögð á markmið, gæði og niðurstöður fremur en ítarlegar tæknilegar forskriftir. Með því er stefnt að því að auka svigrúm hönnuða, framkvæmdaraðila og annarra fagaðila til að þróa hagkvæmar og nýstárlegar lausnir, án þess að slakað verði á kröfum um öryggi, gæði og sjálfbærni mannvirkja.
Meðal helstu fyrirhugaðra breytinga á byggingareftirliti er að færa tæknilegt eftirlit með hönnun og framkvæmd að verulegu leyti frá byggingarfulltrúum til óháðra skoðunarstofa sem starfa í umboði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Hlutverk byggingarfulltrúa verði jafnframt endurskilgreint þannig að þeir sinni áfram stjórnsýslulegum verkefnum, svo sem útgáfu byggingarleyfa og mati á samræmi framkvæmda við skipulag, en ekki tæknilegu eftirliti með sama hætti og nú.
Þá er lagt til að núverandi byggingarstjórakerfi verði lagt niður og ábyrgð verkeigenda, hönnuða og iðnmeistara verði skýrð og styrkt. Einnig er fyrirhugað að endurskoða flokkun mannvirkja þannig að umfang eftirlits taki betur mið af stærð, flækjustigi og áhættu einstakra framkvæmda.
Jafnframt er gert ráð fyrir nýju notkunareftirliti með íbúðarhúsnæði sem ekki er byggt til eigin nota. Slíkt eftirlit fari fram einu og fimm árum eftir öryggisúttekt og hafi það að markmiði að greina mögulega byggingargalla eða frávik tímanlega, áður en þau leiða til frekara tjóns og kostnaðar.
Breytingunum er ætlað að samræma framkvæmd byggingareftirlits um land allt, einfalda stjórnsýslu, draga úr óþarfa kostnaði og töfum, fækka byggingargöllum og bæta réttarstöðu og vernd neytenda. Jafnframt er markmiðið að auka samkeppnishæfni mannvirkjaiðnaðarins og styðja við nýsköpun og lægri byggingarkostnað.
Óskað er eftir sjónarmiðum og ábendingum um áformin, þar á meðal um fyrirhugað fyrirkomulag byggingareftirlits, hlutverk skoðunarstofa, breytta ábyrgðarskiptingu og möguleg áhrif breytinganna á sveitarfélög, fagaðila, framkvæmdaraðila, húseigendur og almenning.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála
frn@frn.is