Til umsagnar
13.7.–21.8.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-130/2026
Birt: 13.7.2026
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Húsnæðis- og skipulagsmál
Fyrirhugaðar eru breytingar á skipulagslögum sem miða að því að bæta málsmeðferð svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins, með einföldun ferlis, stafrænni upplýsingagjöf og skilvirkari lagaframkvæmd.
Ákvæði um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins hafa verið í skipulagslögum frá árinu 2010. Við meðferð laganna á Alþingi var bent á mikilvægi þess að setja skýrar málsmeðferðarreglur sem tryggðu að unnt væri að ná niðurstöðu um svæðisskipulag, jafnframt því að virða sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga.
Reynslan af framkvæmd laganna hefur sýnt að þörf er á að skýra málsmeðferð við staðfestingu og endurskoðun svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins. Samkvæmt gildandi lögum þarf einróma samþykki allra hlutaðeigandi sveitarfélaga, sem getur leitt til þess að eitt sveitarfélag komi í veg fyrir endurskoðun skipulags þrátt fyrir að önnur sveitarfélög séu því fylgjandi. Lagt er því til að lögin kveði skýrar á um hvernig leysa skuli úr ágreiningi sem upp kann að koma.
Jafnframt er lagt til að endurskoða reglur um birtingu upplýsinga og auglýsinga í skipulagsmálum þannig að þær taki mið af stafrænum stjórnsýsluháttum og nútímalegum leiðum til upplýsingamiðlunar og samráðs. Þá verður lögð áhersla á að skýra hlutverk stjórnvalda, bæta verkaskiptingu og samræma framkvæmd.
Einnig er stefnt að því að einfalda tiltekna þætti málsmeðferðar við gerð og breytingar skipulagsáætlana, aðlaga ákvæði laganna að aukinni stafvæðingu og tryggja skilvirkari og fyrirsjáanlegri meðferð mála án þess að dregið sé úr samráði, faglegum undirbúningi eða réttaröryggi. Breytingarnar eru liður í áframhaldandi þróun skipulagslöggjafarinnar og miða að því að tryggja að hún styðji áfram við markmið um sjálfbæra þróun, vandaða skipulagsgerð og góða stjórnsýslu.
Óskað er eftir sjónarmiðum og ábendingum um áformin og þær breytingar sem lagðar eru til.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála
frn@frn.is