Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 13.7.–24.8.2026

2

Í vinnslu

  • 25.8.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-129/2026

Birt: 13.7.2026

Fjöldi umsagna: 7

Áform um lagasetningu

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Vinnumarkaður og atvinnuleysi

Áform um frumvarp til laga um Ábyrgðasjóð launa

Málsefni

Með hinni fyrirhuguðu lagasetningu er ætlunin að endurskoða núgildandi lög um Ábyrgðasjóð launa í heild sinni.

Nánari upplýsingar

Áformin gera ráð fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um Ábyrgðasjóð launa. Áformað er að endurskoða núgildandi lög nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, í heild sinni. Tilgangurinn er meðal annars að bregðast við ítrekuðum ábendingum frá stjórn Ábyrgðasjóðs launa og Ríkisendurskoðun.

Markmið með fyrirhuguðu frumvarpi er meðal annars að eyða óvissu og leysa túlkunarvanda í framkvæmd núgildandi laga, einfalda stjórnsýslu, nútímavæða afgreiðslu sjóðsins með stafrænum lausnum og stuðla að hagræðingu í ríkisrekstri.

Meðal þeirra breytinga sem áformað er að leggja til í frumvarpinu er að stytta ábyrgðartímabil lífeyrissjóðskrafna, leggja niður stjórn Ábyrgðasjóðs launa og gera ákvarðanir Ábyrgðasjóðs launa kæranlegar til úrskurðarnefndar velferðarmála í stað ráðuneytisins. Auk þess verður lagt upp með að einfalda löggjöfina og gera hana skýrari, meðal annars með því að setja orðskýringar inn í lögin og færa ákvæði reglugerðar nr. 462/2003, um Ábyrgðasjóð launa, inn í lögin eftir því sem við á í þeim tilgangi að fella reglugerðina brott.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa vinnumarkaðar og almannatrygginga

frn@frn.is