Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 14.7.–14.8.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-127/2026

Birt: 14.7.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Orkumál

Drög að frumvarpi til laga til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum (EES-réttur)

Málsefni

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum

Nánari upplýsingar

Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum, nr. 30/2008, raforkulögum nr. 65/2003 og lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi nr. 40/2013. Breytingunum er ætlað að tryggja fullnægjandi lagastoð fyrir innleiðingu tilskipunarinnar og nánari útfærslu í reglugerðum.

Í frumvarpinu er m.a. verið að útvíkka gildissvið upprunaábyrgða þannig að þær nái ekki einungis til raforku heldur einnig til að mynda hitunar, kælingar og vetnis. Þá er lagt til að lögfesta ný hugtök á borð við jafningjaviðskipti, orkusamfélög og virka notendur. Með því er lagður grunnur að því að einstaklingar, lítil og meðalstór fyrirtæki ásamt sveitarfélögum geti framleitt, geymt, neytt og selt endurnýjanlega raforku, bæði sjálfstætt og í samlagi við aðra. Þá er ráðherra veitt heimild til að kveða nánar á um tæknileg skilyrði tenginga, einfaldað tilkynningarferli vegna smærri framleiðslueininga og staðlaða gjaldskrárumgjörð í reglugerð. Í frumvarpinu er jafnframt kveðið á um skyldu eldsneytisbirgja og rekstraraðila til að skrá viðeigandi upplýsingar í sameiginlegan gagnagrunn Evrópusambandsins. Markmið slíkrar skráningar er að tryggja gagnsæi og rekjanleika, auðvelda eftirlit og draga úr hættu á að sama magn eldsneytis sé talið oftar en einu sinni. Breytingarnar fela ekki í sér sjálfstæða hækkun á lágmarkshlutdeild endurnýjanlegs eldsneytis eða nýja íblöndunarskyldu umfram það sem leiðir af lögunum og stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra. Þær miða fyrst og fremst að því að skýra hvaða skilyrði eldsneyti þarf að uppfylla til að teljast til markmiða eða skyldna samkvæmt lögunum, hvaða aðilar bera ábyrgð á gögnum, upplýsingum, rekjanleika og skráningu og hvaða heimildir stjórnvöld hafa til eftirlits og nánari útfærslu.

Athugasemdir við frumvarpsdrögin skulu berast eigi síðar en 14. ágúst 2026.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (13)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa orkumála

urn@urn.is