Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 9.7.–31.8.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-126/2026

Birt: 9.7.2026

Fjöldi umsagna: 1

Annað

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Drög að viðmiðum fyrir ræstingarútboð ríkisins

Málsefni

Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að viðmiðum fyrir ræstingarútboð ríkisins.

Nánari upplýsingar

Markmið viðmiðanna er að stuðla að auknu gagnsæi, samræmi og gæðum við framkvæmd ræstingaútboða ríkisins. Þeim er jafnframt ætlað að stuðla að ábyrgum innkaupum þar sem tekið er mið af raunhæfum kostnaðarforsendum og kjarasamningsbundnum réttindum starfsfólks.

Viðmiðin skýra betur hvernig staðið skuli að undirbúningi útboða, framkvæmd þeirra og eftirfylgni á samningstíma. Þeim er ætlað að styðja við heilbrigða samkeppni og skapa skýrari umgjörð um kaup ríkisins á ræstingaþjónustu.

Drögin byggjast á víðtæku samráði við hagsmunaaðila, þar á meðal Eflingu, Starfsgreinasamband Íslands (SGS), fulltrúa verkkaupa og sérfræðinga á sviði opinberra innkaupa. Við undirbúning þeirra hefur jafnframt verið horft til reynslu bæði hérlendis og erlendis og horft til ábendinga starfshóps um æskilegar útboðsaðferðir ræstingaþjónustu.

Viðmiðin eru leiðbeinandi og verða nýtt við ræstingaútboð ríkisins. Óskað er eftir því að athugasemdir við drögin berist eigi síðar en í lok ágúst.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (4)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stjórnunar og umbóta

fjr@fjr.is