Til umsagnar
8.7.–19.8.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-122/2026
Birt: 8.7.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að reglugerð
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Orkumál
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um framkvæmd 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga nr. 65/2003.
Reglugerðardrögin eru sett fram í kjölfar breytinga á raforkulögum með lögum nr. 45/2026, þar sem lögfestar voru nánari reglur um gagnsæi og háttsemi á heildsöluorkumarkaði raforku. Reglugerðinni er ætlað að útfæra nánar framkvæmd þeirra ákvæða raforkulaga sem varða m.a. opinbera birtingu innherjaupplýsinga, frestun birtingar, viðurkennda markaðsframkvæmd, gagnaskil til Raforkueftirlitsins, fyrirbyggingu og greiningu markaðssvika og tilkynningar um grunsamleg viðskipti.
Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að auknu gagnsæi í raforkuviðskiptum og tryggja að Raforkueftirlitið hafi nauðsynlegar upplýsingar til að sinna eftirliti með heildsöluorkumarkaði raforku. Reglugerðin tekur til þeirra aðila sem falla undir 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga, þar á meðal markaðsaðila, rekstraraðila viðskiptavettvanga raforku, milligönguaðila í raforkuviðskiptum og annarra aðila eftir því sem leiðir af raforkulögum.
Í reglugerðardrögunum er kveðið nánar á um skyldu markaðsaðila til að birta innherjaupplýsingar opinberlega, tímanlega, án mismununar og án endurgjalds, þannig að almenningi og markaðsaðilum sé kleift að leggja fullt, rétt og tímanlegt mat á upplýsingarnar. Þá er fjallað um kröfur til birtingarleiða innherjaupplýsinga, tilkynningu til Raforkueftirlitsins um birtingarleið og ábyrgð markaðsaðila á birtingu slíkra upplýsinga.
Reglugerðin fjallar jafnframt um frestun birtingar innherjaupplýsinga. Þar er m.a. kveðið á um hvaða upplýsingar og gögn markaðsaðilar skuli varðveita þegar birtingu er frestað, hvaða upplýsingar skuli senda Raforkueftirlitinu og hvernig tryggja skuli að upplýsingar séu birtar eins fljótt og unnt er ef trúnaður er ekki lengur tryggður eða skilyrði frestunar eru ekki lengur uppfyllt.
Í reglugerðardrögunum eru einnig nánari reglur um viðurkennda markaðsframkvæmd. Þar er fjallað um mat Raforkueftirlitsins á því hvort tiltekin markaðsframkvæmd skuli viðurkennd, samráð við viðeigandi aðila, birtingu ákvörðunar og endurskoðun, breytingu eða afturköllun viðurkenningar. Í viðauka I við reglugerðardrögin eru settar fram nánari reglur um mat Raforkueftirlitsins á viðurkenndri markaðsframkvæmd.
Sérstakur kafli reglugerðarinnar fjallar um gagnaskil til Raforkueftirlitsins. Þar er kveðið á um hvaða tegundir samninga, viðskipta og viðskiptafyrirmæla falli undir gagnaskilaskyldu, hverjir beri ábyrgð á gagnaskilum, hvaða tímamörk gildi og hvaða tæknilegar og skipulagslegar kröfur gildi um gagnaskil. Í viðauka II við reglugerðardrögin eru settar fram lágmarksupplýsingar sem skulu koma fram í gagnaskilum vegna staðlaðra og óstaðlaðra samninga um afhendingu raforku og staðlaðra og óstaðlaðra samninga um flutning raforku.
Þá er í reglugerðinni fjallað um skyldur viðskiptavettvanga raforku og milligönguaðila í raforkuviðskiptum til að koma á viðeigandi fyrirkomulagi, kerfum og verkferlum til að fyrirbyggja og greina innherjasvik, ólögmæta miðlun innherjaupplýsinga, markaðsmisnotkun og tilraunir til slíkrar háttsemi. Jafnframt er kveðið á um tilkynningar til Raforkueftirlitsins ef rökstuddur grunur vaknar um slík brot.
Að lokum eru í reglugerðardrögunum ákvæði um eftirlit Raforkueftirlitsins, úrræði, viðurlög, birtingu ákvarðana, þagnarskyldu, gjaldtöku og gildistöku.
Gert er ráð fyrir að reglugerðin taki gildi 1. janúar 2027.
Óskað er eftir því að athugasemdir við reglugerðardrögin berist eigi síðar en 19. ágúst nk.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa orkumála
urn@urn.i