Til umsagnar
8.–22.7.2026
Í vinnslu
23.7.–12.8.2026
Samráði lokið
13.8.2026
Mál nr. S-120/2026
Birt: 8.7.2026
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Engar umsagnir bárust
Áformað er að innleiða í íslenskan rétt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2025/914
Áformað er að innleiða í íslenskan rétt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2025/914 frá 7. maí 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/1011 að því er varðar umfang reglna um viðmiðanir, notkun Sambandsins á viðmiðunum sem stjórnandi í þriðja landi gerir og tilteknar skýrslugjafarkröfur.
Reglugerðin breytir reglugerð 2016/1011 frá 8. júní 2016 um vísitölur sem notaðar eru sem viðmiðanir í fjármálagerningum og fjárhagslegum samningum eða til að mæla árangur fjárfestingarsjóða og um breytingu á tilskipunum 2008/48/EB og 2014/17/ESB og reglugerð (ESB) nr. 596/2014 (BMR). BMR-reglugerðin er innleidd í lögum um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 7/2021.
Helstu áherslur reglugerðar (ESB) 2025/914 eru breytingar á umfangi BMR-reglugerðarinnar sem leiða til fækkunar á viðmiðum sem falla undir BMR-reglugerðina. Eitt helsta markmið reglugerðar (ESB) 2025/914 er því að draga úr reglugerðar- og stjórnsýslubyrði fyrirtækja og fjárfesta varðandi þær viðmiðanir sem hafa mest efnahagsleg áhrif og tryggja að notendur viðmiðana í ESB hafi áfram aðgang að sem víðtækasta safni viðmiðana, þar á meðal viðmiðana frá ríkjum utan ESB. Breytingin mun hafa áhrif á stjórnendur viðmiðana innan ESB og stjórnendur viðmiðana utan ESB sem veita viðmiðanir til notkunar innan ESB.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
fjr@fjr.is