Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 7.7.–5.8.2026

2

Í vinnslu

  • 6.8.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-117/2026

Birt: 7.7.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að reglugerð

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Drög að breytingu á reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja, nr. 1243/2019

Málsefni

Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að breytingu á reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja.

Nánari upplýsingar

Fjármála- og efnahagsráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1243/2019, um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja.

Með drögunum eru lagðar til breytingar á fyrirkomulagi útgreiðslu endurgreidds virðisaukaskatts þannig að endurgreiðslur fari fram í íslenskum krónum. Um er að ræða breytingu frá gildandi fyrirkomulagi, þar sem erlendir aðilar geta óskað eftir að endurgreiðsla fari fram í erlendum gjaldeyri. Markmið breytingarinnar er að einfalda framkvæmd útgreiðslna og bæta fjárstýringu ríkissjóðs.

Jafnframt er lagt til að kveðið verði nánar á um skilyrði umboða vegna umsókna um endurgreiðslu. Í framkvæmd er í fjölda tilvika óskað eftir því að endurgreidd fjárhæð verði greidd inn á bankareikning í eigu umboðsmanns eða annars aðila en umsækjanda. Samkvæmt gildandi reglum skal skriflegt umboð liggja fyrir þegar umsækjandi felur öðrum aðila að koma fram fyrir sína hönd, en ekki er sérstaklega mælt fyrir um form og efni slíkra umboða. Með hliðsjón af réttaröryggi og fyrirsjáanleika í framkvæmd, auk þess sem mikilvægt er að tryggja að endurgreiðsla fari fram á grundvelli fullnægjandi heimildar umsækjanda, er lagt til að nánar verði kveðið á um form- og efnisskilyrði umboða og þau gögn sem þeim skulu fylgja

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa skattamála

fjr@fjr.is