Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 3.7.–7.8.2026

2

Í vinnslu

  • 8.8.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-116/2026

Birt: 3.7.2026

Fjöldi umsagna: 10

Áform um lagasetningu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Áform um lagasetningu um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki nr. 152/2009

Málsefni

´Áform um breytingar á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki sem miða að því að efla stuðning við nýsköpun og þróun, auka skýrleika og bæta framkvæmd laganna.

Nánari upplýsingar

Áformað er að endurskoða lög nr. 152/2009 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki í því skyni að styrkja lagaumgjörð stuðnings við rannsóknar- og þróunarverkefni fyrirtækja og bæta framkvæmd laganna.

Helstu breytingar sem eru til skoðunar lúta meðal annars að skýrari skilgreiningum og skilyrðum stuðnings, breytingum á umsóknar- og málsmeðferð, heimild til staðfestingar verkefna að hluta, reglum um gildistíma staðfestinga, kostnað vegna aðkeyptrar rannsóknar- og þróunarvinnu og öðrum breytingum sem reynsla af framkvæmd laganna hefur gefið tilefni til. Þá er jafnframt litið til þróunar í atvinnulífi, framkvæmdar rannsóknar- og þróunarverkefna og skuldbindinga Íslands samkvæmt EES-samningnum.

Áformaskjal og mat á áhrifum lagasetningar fylgja málinu og eru umsagnaraðilar hvattir til að koma á framfæri sjónarmiðum um þær breytingar sem þar eru kynntar.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

skrifstofa skattamála

fjr@fjr.is