Til umsagnar
13.7.–17.8.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-113/2026
Birt: 13.7.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að reglugerð
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að breytingum á ýmsum reglugerðum á sviði hollustuhátta og mengunarvarna í kjölfar nýsamþykktra laga um einföldun eftirlits.
Alþingi samþykkti nýlega frumvarp um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits). Með frumvarpinu eru heilbrigðisnefndir lagðar niður, horfið frá hefðbundinni svæðisskiptingu heilbrigðiseftirlits og framkvæmd eftirlitsins í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar.
Í kjölfar samþykktar laganna þarf að gera ýmsar breytingar á reglugerðum. Hér eru kynnt til samráðs drög að þeim breytingum á reglugerðum sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Alls er um að ræða breytingar á 57 reglugerðum. Til hægðarauka er einnig sett fram yfirlitsskjal með yfirliti yfir þær breytingar sem í reglugerðunum felast. Flestar þessara breytinga mæla fyrir um flutning verkefnis frá heilbrigðisnefnd til Umhverfis- og orkustofnunar, en einnig færast einhver verkefni til sveitarfélaga. Jafnframt er orðalag og tilvísanir í reglugerðum uppfært til samræmis við hið nýja fyrirkomulag. Gildistími reglugerðarbreytinganna er samhliða gildistíma lagabreytinganna, 1. janúar 2027.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa umhverfisgæða
urn@urn.is