Til umsagnar
26.6.–7.8.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-110/2026
Birt: 26.6.2026
Fjöldi umsagna: 15
Drög að reglugerð
Heilbrigðisráðuneytið
Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um heilsugæslu.
Heilbrigðisráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að nýrri reglugerð um heilsugæslu. Með reglugerðinni er lögð áhersla á að skýra betur hvaða grunnþjónustu heilsugæslustöðvar skulu veita, óháð rekstrarformi, og stuðla þannig að bættu aðgengi almennings að heilsugæsluþjónustu.
Reglugerðardrögin eru liður í umfangsmiklu umbótaverkefni heilbrigðisráðuneytisins sem miðar að því að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað notenda heilbrigðisþjónustu, auka skilvirkni og tryggja skýrari kröfur til þjónustu heilsugæslustöðva.
Í drögunum er kveðið mun nánar og ítarlegar á um hlutverk og verkefni heilsugæslustöðva heldur en í gildandi reglugerð um þjónustu heilsugæslu. Þá er markmiðið að jafna stöðu opinberrar og einkarekinnar heilsugæslu með reglugerð sem gildir um þjónustu þeirra og rekstur óháð rekstrarformi.
Innan heilsugæslunnar hafa um árabil verið rekin miðlæg þjónustuteymi sem veita þjónustu á landsvísu en hafa aldrei verið tilgreind í reglugerð. Í reglugerðardrögunum er kveðið á um að ráðherra ákveði sérstaklega fyrirkomulag miðlægrar þjónustu sem veitt er til viðbótar við grunnþjónustu, hvort sem hún er veitt á landsvísu eða innan heilbrigðisumdæmis.
Reglugerðardrögin eru til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda til 24. júlí næstkomandi.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa heilbrigðisþjónustu
hrn@hrn.is