Til umsagnar
26.6.–10.7.2026
Í vinnslu
11.7.–20.10.2026
Samráði lokið
21.10.2026
Mál nr. S-109/2026
Birt: 26.6.2026
Fjöldi umsagna: 4
Annað
Dómsmálaráðuneytið
Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála
Umsagnir um drög að skýrslunni voru hafðar til hliðsjónar við endanlegan frágang hennar. Skýrslan var send skrifstofu mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna þann 9. október 2026 og verður hún lögð til grundvallar við fyrirtöku Íslands hjá mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í janúar 2027.
Óskað er eftir umsögnum um drög að skýrslu Íslands vegna allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála. Um er að ræða drög sem gera má ráð fyrir taki breytingum að loknu samráði.
Hér eru kynnt drög að fjórðu allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála (Universal Periodic Review eða UPR) hér á landi. Síðasta allsherjarúttekt fór fram í janúar 2022. Þá skilaði Ísland miðannarskýrslu árið 2025, þar sem farið var yfir öll tilmælin sem íslenska ríkið samþykkti í úttektinni 2022 og upplýsingar um þær ráðstafanir sem gripið var til til að bregðast við þeim.
Allsherjarúttektin felur í sér heildarúttekt á stöðu mannréttindamála innan aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna og fer fram á u.þ.b. fimm ára fresti. Ferlið byggir á jafningjarýni ríkja. Þau fara yfir stöðu mannréttindamála hjá hverju öðru, koma með ábendingar og skora á hvert annað að gera betur. Markmiðið með ferlinu er meðal annars að bæta stöðu mannréttindamála í heiminum og hvetja ríki til þess að uppfylla skuldbindingar sínar í þeim efnum. Ísland hefur þrisvar sinnum farið í gegnum úttektina og svarað fyrir skýrslu í fyrirtökum árin 2012, 2017 og síðast 2022.
Úttektin felst meðal annars í því að Íslandi ber að skila skýrslu til Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna fyrir 1. október 2026. Skýrslan fjallar um þróun mannréttindamála á Íslandi frá síðustu úttekt ráðsins árin 2021 til 2022 og hvernig hefur verið brugðist við ábendingum vegna hennar.
Óskað er eftir umsögnum og ábendingum um efni skýrslunnar.
Einnig má benda á að félagasamtök sem vilja taka þátt í úttektinni þurfa að skila inn upplýsingum eigi síðar en 17. júlí 2026. Nánari upplýsingar má nálgast hér: https://www.ohchr.org/EN/HRBodies/UPR/Pages/NgosNhris.aspx.
Finna má frekari upplýsingar um ferlið hér:
https://www.ohchr.org/en/hr-bodies/upr/upr-home.
https://upr-info.org/en.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa jafnréttismála
dmr@dmr.is