Til umsagnar
19.6.–21.8.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-105/2026
Birt: 19.6.2026
Fjöldi umsagna: 1
Stöðumat og valkostir
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Innviðaráðuneytið undirbýr gerð grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Með forsamráði er óskað eftir sjónarmiðum um hvaða viðfangsefni, álitaefni, áskoranir og tækifæri grænbókin eigi að fjalla um.
Fjarskipti og netöryggi eru grundvallarþættir í starfsemi nútímasamfélags. Örugg, öflug og áfallaþolin fjarskipti eru forsenda stafrænnar þjónustu, atvinnustarfsemi, byggðaþróunar, neyðarsamskipta, opinberrar þjónustu og daglegs lífs. Jafnframt eru netöryggi, viðnámsþróttur og traust stafrænna kerfa lykilforsendur þess að samfélagslega mikilvæg þjónusta geti starfað með öruggum hætti.
Til skoðunar er hvort mótuð verði ein samþætt stefna og aðgerðaáætlun fyrir fjarskipti og netöryggi eða tvær aðskildar en samhæfðar stefnur. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hyggst mæla fyrir nýrri stefnu eða stefnum á þessu sviði í ársbyrjun 2027.
Tilefni vinnunnar er annars vegar fyrirhuguð endurskoðun fyrirliggjandi stefnu og aðgerðaáætlunar stjórnvalda í netöryggi og hins vegar þörf á mótun nýrrar stefnu og aðgerðaáætlunar í fjarskiptum. Þar sem fjarskipti og netöryggi eru sífellt nátengdari telur ráðuneytið mikilvægt að fjalla um þessi málefni samhliða. Mörk málaflokkanna eru ekki lengur skýr þegar kemur að öryggi fjarskiptainnviða, netöryggi mikilvægra innviða, neyðarsamskiptum, rekstrarsamfellu, fjarskiptasvikum, sæstrengjum, birgjakeðjum, stafrænu trausti og áfallaþoli samfélagsins.
Venjulega eru drög að grænbók lögð fram til samráðs eftir að stöðumat, lykilviðfangsefni og mögulegir valkostir hafa verið mótuð. Í þessu tilviki er samráð hafið fyrr í ferlinu. Markmiðið er að fá fram sjónarmið um efnistök grænbókarinnar áður en hún verður unnin, þannig að hún byggist frá upphafi á breiðri mynd af því sem almenningur, fyrirtæki, opinberir aðilar, sveitarfélög, fræðasamfélag, félagasamtök og aðrir hagsmunaaðilar telja mikilvægast.
Í samráðsskjalinu eru sett fram möguleg efnistök grænbókarinnar og spurningar til samráðsaðila. Meðal viðfangsefna sem til álita kemur að fjalla um eru áfallaþol og öryggi fjarskiptainnviða, aðgengi að öflugum fjarskiptum um land allt, farnet og tíðnimál, sæstrengir og alþjóðlegar tengingar, netöryggi mikilvægra innviða, NIS2 (tilskipun ESB um net- og upplýsingaöryggi), fjarskiptasvik og netglæpir, rafræn auðkenning og traustþjónusta, samkeppni og fjárfesting, mannauður, hæfni, nýsköpun, stafrænt fullveldi og samkeppnishæfni Íslands.
Sérstaklega er óskað eftir sjónarmiðum um hvort upptalning mögulegra efnistaka sé rétt afmörkuð, hvort mikilvæg atriði vanti, hvaða viðfangsefni eigi að hafa mest vægi til næstu ára og hvaða gögn, reynsla eða sjónarmið ættu að liggja til grundvallar gerð grænbókarinnar. Þá er óskað eftir sjónarmiðum um hvort fjarskipti og netöryggi eigi að verða hluti af einni samþættri stefnu og aðgerðaáætlun eða tveimur aðskildum en samhæfðum stefnum.
Þetta samráð felur ekki í sér drög að stefnu, aðgerðaáætlun eða endanlega afstöðu stjórnvalda. Um er að ræða forsamráð um efnistök grænbókar. Að loknu samráðinu verður unnið úr innsendum umsögnum og ábendingum og þær nýttar við gerð grænbókar. Drög að grænbók verða síðar birt til sérstaks samráðs áður en eiginleg stefna og aðgerðaáætlun verða mótaðar.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála
irn@irn.is