Til umsagnar
19.6.–18.8.2026
Í vinnslu
19.8.–15.10.2026
Samráði lokið
16.10.2026
Mál nr. S-104/2026
Birt: 19.6.2026
Fjöldi umsagna: 30
Drög að stefnu
Innviðaráðuneytið
Sveitarfélög og byggðamál
Hvítbók um byggðamál var birt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda 19. júní til 18. ágúst 2026. Alls bárust 29 umsagnir, þar af 14 frá sveitarfélögum og landshlutasamtökum. Aðrar umsagnir komu frá opinberum stofnunum, þekkingarsetrum, hagsmunasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingi. Umsagnirnar sýna víðtækan stuðning við meginlínur hvítbókarinnar. Í 28 umsögnum kom slíkur stuðningur skýrt fram; sú eina sem tók ekki afstöðu fjallaði fyrst og fremst um tiltekna aðgerð. Jafnframt komu fram ábendingar um útfærslu, fjármögnun og framkvæmd.
Í hvítbók um byggðamál eru kynnt drög að stefnumótandi byggðaáætlun til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára.
Samkvæmt lögum nr. 30/2023 um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði innviða skal ráðherra leggja fram endurskoðaða byggðaáætlun á hverju kjörtímabili. Byggðaáætlun er lýsing á stefnu ríkisins í byggðamálum hverju sinni og samhæfing við aðra stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Byggðaáætlun skal hafa að meginmarkmiði að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðalaga um land allt. Sérstök áhersla skal lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.
Vinna við endurskoðunina hófst haustið 2025 og grænbók, sem felur í sér stöðumat og greiningu á helstu áskorunum og tækifærum í málaflokknum, var lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda í lok janúar 2026. Víðtækt samráð hefur verið viðhaft við endurskoðun byggðaáætlunar. Í hvítbókinni eru lagðar fram tillögur að 41 aðgerð. Aðgerðirnar eru fjölbreyttar snerta málefnasvið allra ráðuneyta.
Innviðaráðherra hyggst leggja fram þingsályktunartillögu um stefnumótandi byggðaáætlun á Alþingi haustið 2026.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála
irn@irn.is