Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 10.6.–8.7.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-99/2026

Birt: 10.6.2026

Fjöldi umsagna: 2

Drög að reglugerð

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Leikskólar, grunnskólar, önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála

Drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla

Málsefni

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla sem í undirbúningi hefur gengið undir vinnuheitinu „símafrí/símafriður í grunnskólum“.

Nánari upplýsingar

Lagt er til að sett verði ný reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla á grundvelli 6. mgr. 14. gr. og 4. mgr. 30. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008. Reglugerðin tekur einnig til frístundaheimila skv. 33. gr. a. laga um grunnskóla. Þá tekur reglugerðin jafnframt til tómstunda- og félagsstarfs sem er liður í daglegu starfi á skólatíma, sbr. 33. gr. sömu laga.

Drögin fjalla einkum um notkun nemenda í grunnskólum á símum og snjalltækjum sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla og um undanþágur frá meginreglunni um óheimila notkun slíkra sækja á skólatíma. Þá er í drögunum fjallað um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í eigu eða umsjá skóla eða frístundaheimilis í kennslufræðilegum tilgangi eða vegna stuðningsþarfa nemenda.

Markmið reglugerðarinnar er að samræma reglur um notkun nemenda í grunnskóla á símum og snjalltækjum sem ekki eru í eigu eða umsjá skólans. Að auki er markmið hennar að skapa námsfrið, stuðla að vellíðan, auknum félagslegum tengslum og jákvæðum skólabrag, styðja við faglegt skólastarf og efla einbeitingu og frammistöðu nemenda. Þá er markmið reglugerðarinnar að stuðla að góðu samstarfi og samráði milli aðila skólasamfélagsins um notkun síma og snjalltækja og stuðla að gagnkvæmu trausti milli þeirra, virðingu, samábyrgð og tillitssemi.

Í reglugerðardrögunum er meðal annars að finna skilgreiningar á hugtökunum sími, snjalltæki, skólatími og notkun í kennslufræðilegum tilgangi. Þá er kveðið á um hvenær símar og snjalltæki séu heimil í skólastarfi, undanþágur frá meginreglunni um óheimila notkun síma og snjalltækja í skólastarfi sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla og skilyrði undanþága, innleiðingu og framkvæmd reglugerðarinnar. Drögin fjalla einnig um viðbrögð við brotum á reglum og tengsl við reglugerð nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum. Í drögunum er jafnframt gert ráð fyrir því að hver skóli móti reglur um hvar og hvernig skuli geyma síma og snjalltæki sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla þótt notkun þeirra sé óheimil á skólatíma.

Nú þegar hefur verið haldin vinnustofa með börnum og ungmennum um málefnið og jafnframt voru haldnir opnir kynningarfundir um reglugerðardrögin með skólaráðum grunnskóla.

Mennta- og barnamálaráðuneytið fagnar öllu samráði um málefnið og mun taka allar ábendingar til skoðunar í þeirri vinnu sem fram undan er við vinnslu reglugerðarinnar.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (26)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

mrn@mrn.is