Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 9.–30.6.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-98/2026

Birt: 9.6.2026

Fjöldi umsagna: 9

Annað

Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa

Drög að aðgerðaáætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun fyrir árin 2026-2030

Málsefni

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að aðgerðaáætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun.

Nánari upplýsingar

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin hefur hvatt þjóðir heims til að setja fram aðgerðaáætlanir um þjónustu við einstaklinga með heilabilun, ekki hvað síst í ljósi þeirrar miklu fjölgunar þeirra sem ætla má að greinist með heilabilun á næstu árum og áratugum. Fyrsta aðgerðaáætlunin um þjónustu við einstaklinga með heilabilun var sett fram hér á landi árið 2019 með gildistíma frá 2020 til 2025. Aðgerðaáætlunin byggði á stefnu í málefnum einstaklinga með heilabilun sem unnin var af Jóni Snædal öldrunarlækni, í kjölfar þingsályktunar og erindisbréfs þáverandi heilbrigðisráðherra. Settar voru fram 48 aðgerðir, allar með mælanleg markmið sem unnið hefur verið eftir. Meiri hluti þeirra hefur náðst fram þó að sumum hafi verið unnið á annan hátt eða af öðrum aðilum en upphaflega var ráðgert.

Vinna við uppfærslu gildandi aðgerðaáætlunar hófst síðla ár 2025, í samvinnu sérfræðings heilbrigðisráðuneytisins, Jóns Snædals öldrunarlæknis og Guðlaugs Eyjólfssonar, framkvæmdastjóra Azheimersamtakanna.

Sú aðgerðaáætlun sem hér er sett fram byggir á fyrri áætlun en tekur þó ekki síður mið af þeim áherslubreytingum sem orðið hafa síðustu fimm árin í málefnum og þjónustu við einstaklinga með heilabilun. Sérstök áhersla er á forvarnir og snemmtæka íhlutun. Settar eru fram 27 tímasettar aðgerðir og ábyrgðaraðilar um framkvæmd skilgreindir fyrir hverja aðgerð.

Endanleg útgáfa er unnin af og á ábyrgð heilbrigðisráðuneytis og samþykkt af heilbrigðisráðherra. Framkvæmd aðgerða og fjármögnun verkefna sem ekki eru hluti af núverandi fjármögnun þjónustuveitenda verða til skoðunar innan ráðuneytisins svo tryggja megi framgang þeirra.

Athygli er vakin á því að frestur til að skila umsögnum í samráðsgátt er til 30. júní næstkomandi.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (5)

Umsjónaraðili

Skrifstofa heilbrigðisþjónustu

hrn@hrn.is