Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 4.6.–8.7.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-97/2026

Birt: 4.6.2026

Fjöldi umsagna: 3

Annað

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Örorka og málefni fatlaðs fólks

Svar Íslands við spurningalista (List of Issues) sérfræðinefndar SÞ um réttindi fatlaðs fólks - drög

Málsefni

Óskað er eftir umsögnum og ábendingum við drög að skýrslu Íslands vegna spurningalista sérfræðinefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks,

Nánari upplýsingar

Sérfræðinefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur óskað svara við álitamálum (List of Issues) um framkvæmd og innleiðingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), byggt á fyrstu stöðuskýrslu Íslands sem kom út árið 2020.

Skrifstofa félagsmála í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu heldur utan um að svara álitamálunum í samstarfi við stýrihóp Stjórnarráðsins um mannréttindi, en í þeim hópi sitja fulltrúar allra ráðuneyta. Eru svörin birt hér sem drög að skýrslu.

Spurningalistinn tekur til áranna 2021-2026, en í skýrslunni er leitast við að gefa sem réttasta mynd af því hvernig framkvæmd og innleiðing samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) hefur tekist.

Óskað er eftir umsögnum og ábendingum um efni skýrslunnar.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (6)

Umsjónaraðili

Skrifstofa félagsmála

frn@frn.is