Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 3.–24.6.2026

2

Í vinnslu

  • 25.6.2026–

Samráði lokið

Mál nr. S-96/2026

Birt: 3.6.2026

Fjöldi umsagna: 37

Annað

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Aðgerðaáætlun stefnu stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni 2026-2030

Málsefni

Drög að aðgerðaáætlun stefnu íslenskra stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni 2026-2030.

Nánari upplýsingar

Stefna íslenskra stjórnvalda um vernd líffræðilegrar fjölbreytni var gefin út af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í byrjun árs 2026. Stefnan byggir á sex leiðarljósum sem draga fram lykiláherslur stefnunnar og mynda grunn að þeim aðgerðum sem stjórnvöld hyggjast fara í til að auka vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Leiðarljósin eru:

-Sterkur sess líffræðilegrar fjölbreytni innan stjórnkerfis

-Vernd og endurheimt vistkerfa og tegunda

-Sjálfbær landnotkun og auðlindanýting í sátt við líffræðilega fjölbreytni

-Áhrif framandi ágengra lífvera, mengunar og loftslagsbreytinga á líffræðilega fjölbreytni

-Líffræðileg fjölbreytni fyrir samfélagið

-Þekking er undirstaða árangurs

Í aðgerðaáætluninni er tryggt að tengsl séu á milli aðgerðanna við leiðarljósin. Aðgerðaáætlunin samanstendur af 19 aðgerðum. Þar af eru fimm þeirra forgangsaðgerðir sem stjórnvöld leggja sérstaka áherslu á að hrinda í framkvæmd á fyrstu árum innleiðingar stefnunnar:

• Verndarsvæði í hafi

• Virk svæðisvernd á landi

• Hvatar fyrir vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbæra landnýtingu

• Átak í gerð stjórnunar- og verndaráætlana

• Landbúnaður og náttúruvernd

Aðgerðaáætlunin markar upphaf markvissrar innleiðingar stefnu Íslands um líffræðilega fjölbreytni sem ætlað er að leggja grunn að áframhaldandi framkvæmd og þróun stefnunnar til ársins 2030.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa náttúru og minjaverndar

urn@urn.is