Til umsagnar
2.6.–5.8.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-95/2026
Birt: 2.6.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Dómsmálaráðuneytið
Fjölskyldumál
Dómsmálaráðuneytið kynnir hér með til umsagnar drög sifjalaganefndar að frumvarpi til nýrra hjúskaparlaga.
Sifjalaganefnd hefur skilað dómsmálaráðherra drögum að frumvarpi til nýrra hjúskaparlaga.
Með frumvarpinu er lögð er til skýrari uppbygging hjúskaparlaga með nöfnum allra ákvæða og með markvissara og nútímalegra orðalagi. Helstu breytingar sem sifjalaganefnd leggur til frá núgildandi lögum snúa að því að gera maka kleift að óska beins lögskilnaðar án þess að tilgreina ástæðu og um leið að fella á brott sérstakar lögskilnaðarástæður, svo sem vegna hjúskaparbrots og ofbeldis. Í ljósi einfaldari skilnaðarskilyrða leggur nefndin til að hverfa frá því að dómstólar leysi úr ágreiningsmálum um skilnað og sýslumanni verði alfarið falið að veita leyfi til skilnaðar. Nefndin leggur til skýrari ákvæði um fjárskipti milli hjóna, m.a. ný ákvæði um stöðu lífeyrisréttinda. Helsta breytingin sem nefndin leggur til er sú að gera almennt ráð fyrir maki geti krafist þess að lífeyrisréttindi sem myndast hafa með greiðslu lágmarksiðgjalds komi ekki undir fjárskipti vegna skilnaðar en að önnur lífeyrisréttindi komi til fjárskipta. Nefndin leggur einnig til breytingar á ákvæðum um framfærsluskyldu hjóna og skýrari ákvæði um samninga milli hjóna. Þá eru lagðar til nokkrar breytingar á hjónavígsluskilyrðum, hjónavígslu og ógildingu hjúskapar.
Sifjalaganefnd var þannig skipuð:
• Hrefna Friðriksdóttir, formaður, án tilnefningar.
• Valborg Þ. Snævarr, tilnefnd af Lögmannafélagi Íslands. (Sigurður G. Guðjónsson til vara).
• Óskar Sturluson, tilnefndur af Sýslumannaráði. (Arndís Soffía Sigurðardóttir til vara).
Höfð verður hliðsjón af umsögnum sem berast við frekari vinnslu frumvarpsins í ráðuneytinu.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa borgaralegra réttinda
dmr@dmr.is