Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 27.5.–15.6.2026

2

Í vinnslu

  • 16.6.–7.10.2026

3

Samráði lokið

  • 8.10.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-94/2026

Birt: 27.5.2026

Fjöldi umsagna: 28

Annað

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Leikskólar, grunnskólar, önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála

Áform um breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla

Niðurstöður

Alls bárust 28 umsagnir en í meðfylgjandi skjali er að finna stutta samantekt um umsagnirnar. Að loknu samráði hefur verið ákveðið að halda áfram með breytingarnar og innleiða þær í áföngum. Við innleiðinguna verður áfram lögð áhersla á fjölbreytt námsmat, jafnræði og aðgengi, skýrar leiðbeiningar og faglegan stuðning við skóla. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu mun styðja við innleiðinguna og áfram verður haft samráð við skólasamfélagið við nánari útfærslu breytinganna. Fyrirhugaðar breytingar á aðalnámskrá verða samhliða kynntar til umsagnar á samráðsgátt.

Málsefni

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um breytingar á námsmatshluta aðalnámskrá grunnskóla sem miða að því að námsmat verði sett fram með tölum ekki bókstöfum.

Nánari upplýsingar

Mennta- og barnamálaráðherra áformar að breyta námsmati í grunnskólum með því að skipta úr bókstöfum yfir í tölur. Áformin fela það í sér að skilgreindur verði tölukvarði í stað bókstafakvarða og að tölukvarðinn verði lagður til grundvallar við lokaeinkunnir í skyldunámi. Ráðgert er að allar lokaeinkunnir verði settar fram í tölum og að notkun tölukvarða verði skyldubundinn við lok 4., 7. og 10. bekkjar.

Með breytingunni er stefnt að því að gera námsmat skýrara og auðskiljanlegra fyrir nemendur og foreldra, án þess að draga úr faglegu hlutverki kennara eða mikilvægi fjölbreyttra matsaðferða í skólastarfi líkt og núgildandi aðalnámskrá kveður á um.

Áformin endurspegla þá víðtæku umræðu sem hefur átt sér stað um námsmat í grunnskólum og hvort núverandi einkunnarkerfi þjóni nemendum, foreldrum og skólum nægilega vel. Meginmarkmiðið er að námsmat verði skýrara og að það styðji betur við nám , framfarir og námsframvindu nemenda.

Með sameiginlegum tölukvarða er stefnt að því að skapa aukinn sameiginlegan skilning á stöðu nemenda, væntingum og námsframvindu. Slíkur skýrleiki getur styrkt samtal milli nemenda, foreldra og skóla og stuðlað að auknu trausti á námsmati í grunnskólum.

Mennta- og barnamálaráðuneytið fagnar samráði við alla hópa um málefnið og mun taka allar ábendingar til skoðunar í þeirri vinnu sem fram undan er.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (18)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

mrn@mrn.is