Til umsagnar
22.5.–19.6.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-93/2026
Birt: 22.5.2026
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á gjaldaákvæði hafnalaga nr. 61/2003.
Hafnir á Íslandi, uppbygging þeirra og rekstur, eru hluti af mikilvægum innviðum landsins. Um hafnir gilda hafnalög nr. 61/2003 sem samkvæmt gildissviði laganna taka til allra hafna sem notaðar eru til afgreiðslu og þjónustu skipa, afgreiðslu á vörum, ökutækjum og farþegum og við löndun á fiski.
Þær breytingar sem hér eru áformaðar snúa að ákvæði 17. gr., sbr. 11. gr., um gjaldtöku hafna.
Fulltrúar hafna hafa kallað eftir því að gjaldaákvæði hafnalaga verði endurskoðað og höfnum með því auðveldað að innheimta réttmætt gjald fyrir þá þjónustu sem þær sannarlega veita.
Innviðaráðuneytið leggur nú fram til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda fyrirætlun sína um að endurskoða gjaldaákvæði hafnalaga svo hagsmunaaðilum og almenningi gefist færi á að setja fram ábendingar og athugasemdir.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa samgangna
katrin.palsdottir@irn.is