Til umsagnar
22.5.–5.6.2026
Í vinnslu
6.6.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-92/2026
Birt: 22.5.2026
Fjöldi umsagna: 3
Drög að reglugerð
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Innviðaráðuneytið kynnir til samáðs drög að reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja.
Ráðuneytið birtir hér drög að reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja, sem eiga stoð í 6. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 7//2019. Í drögunum er mælt fyrir um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu ávísunarskyldra lyfja sem innihalda nánar tilgreind efni, þegar þeirra er neytt á grundvelli ávísunar læknis og í samræmi við fyrirmæli hans.
Drögin eru unnin að norskri fyrirmynd og styrkleiki efna í blóði er umreiknaður svo að hann samsvari magni vínanda í blóði. Í drögunum er miðað við styrkleika efna sem samsvarar 0,5‰ af vínanda í blóði.
Ökumönnum ber eftir sem áður að gæta að eigin ökuhæfni, sbr. 2. mgr. 48. gr. umferðarlaga og að þeir séu færir um að stjórna viðkomandi ökutæki örugglega.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa samgangna
irn@irn.is