Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 19.5.–5.8.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-88/2026

Birt: 19.5.2026

Fjöldi umsagna: 20

Drög að stefnu

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál

Sviðslistastefna 2026-2030

Málsefni

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti kynnir til umsagnar drög að sviðslistastefnu fyrir árin 2026-2030

Nánari upplýsingar

Stefna þessi var unnin í menningar- og viðskiptaráðuneytinu árið 2023-2024 í víðtæku samráði við vettvang sviðslista, þar með talið dans, leiklist, óperu, sirkus og brúðuleikhús. Með tilkomu nýrrar ríkisstjórnar og nýs ráðuneytis var aðgerðaráætlunin uppfærð og endurskoðuð innan menningar- nýsköpunar og háskólaráðuneyti haustið 2025 og fram til byrjun árs 2026. Fjármögnun var endurskoðuð og aðgerðir uppfærðar meðal annars með tilliti til nýstofnaðrar óperu, áætlana um viðbyggingu við Þjóðleikhúsið og áherslu nýs ráðherra.

Stefnan inniheldur framtíðarsýn og markmið sviðslista til ársins 2030 auk aðgerða sem er liður í að ná tilsettum markmiðum.

Mikilvægt er að almenn sátt sé um þá stefnu sem mörkuð er í málefnum sviðslista og að stjórnvöld hafi sem besta innsýn inn í ólík sjónarmið. Með birtingu í samráðsgátt gefst tækifæri til enn breiðara samráðs og því er hér kallað eftir umsögnum um innihald, áherslur og aðgerðir sem lagðar eru til í þessum drögum. Í framhaldinu verður unnið úr þeim ábendingum sem berast og lokaútgáfa stefnunnar lögð fram.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (25)

Umsjónaraðili

skrifstofa menningar og skapandi greina

marta.nordal@mnh.is