Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 10.6.–7.7.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-87/2026

Birt: 10.6.2026

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda (leyfisveitingar vegna vísindarannsókna í hafi)

Málsefni

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda um leyfisveitingar vegna vísindarannsókna í hafi.

Nánari upplýsingar

Áformað er að leggja fram frumvarp þar sem lagðar eru til breytingar á á lögum nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda.

Frumvarpið er samið af starfshópi þriggja ráðuneyta, þ.e. umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, utanríkisráðuneytis og atvinnuvegaráðuneytis auk fulltrúa frá Umhverfis- og orkustofnun. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda. Markmið frumvarpsins er að tryggja skýran lagamma um heimildir til að stunda rannsóknir í hafinu umhverfis Ísland, á sviði loftslagsverkfræði („marine geoengineering“) sem og tryggja skilvirkni í málsmeðferð.

Samkvæmt 9. gr. laga nr. 41/1979 um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn eru vísindalegar rannsóknir háðar samþykki stjórnvalda, en framkvæmd þeirra laga hefur verið á forræði utanríkisráðuneytisins og miðast einkum við rannsóknir erlendra ríkja og alþjóðastofnana. Hagkvæmast er að færa stjórnsýslu vegna starfsemi er lýtur að loftslagsverkfræðilegum rannsóknum til Umhverfis- og orkustofnunar í ljósi þess að sú stofnun fer m.a. með loftslagsmál og mengunarvarnir.

Ljóst er að aukin eftirspurn er eftir leyfum vegna slíkra rannsókna og því mikilvægt að lög og reglur séu skýrar til að tryggja skilvirkni í afgreiðslu mála.

Meginregla í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda er sú að óheimilt er að varpa efnum og hlutum í hafið. Umhverfis- og orkustofnun getur hins vegar veitt leyfi fyrir því að ákveðnum hlutum og efnum sé varpað í hafið. Það er háð mati hverju sinni hvort um varp í hafið er að ræða eða ekki, en það að koma fyrir efnum eða hlutum í hafinu í öðrum lögmætum tilgangi en að farga þeim, telst t.a.m. ekki varp í hafið auk annarra tilvika.

Í frumvarpinu er lögð til sú meginbreyting að Umhverfis- og orkustofnun geti veitt leyfi fyrir vísindalegum rannsóknum er varða loftslagsverkfræðilegar aðgerðir í hafi í rannsóknarskyni. Ákvæðið byggir á breytingum á Lundúnabókuninni (Resolution LP.4(8)) og gerir kröfu um að slíkar rannsóknir séu lögmætar vísindarannsóknir og háðar mati á áhrifum samkvæmt matsviðmiðum sem samþykkt hafa verið af samningsaðilum og leyfi Umhverfis- og orkustofnunar. Um er að ræða loftslagsverkfræðilegar rannsóknir í hafi, sem m.a. er ætlað að vinna gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum. Með því er tryggt að Ísland uppfylli alþjóðlegar skyldur sínar um verndun hafsins gegn mengun sem getur hlotist af slíkum aðgerðum. Gildandi lög hafa ekki veitt stjórnvöldum nægilega skýrar heimildir til að hafa eftirlit með eða takmarka rannsóknir einkaaðila á hafi, þegar um er að ræða nýstárlegar aðferðir eins og loftslagsverkfræðilegar rannsóknir (t.d. örvun frumframleiðni með dreifingu á næringarefnum s.s. járni, köfnunarefni og fosfór í því skyni að auka kolefnisbindingu).

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (5)

Umsjónaraðili

Skrifstofa umhverfisgæða

urn@urn.is