Til umsagnar
12.–26.5.2026
Í vinnslu
27.5.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-83/2026
Birt: 12.5.2026
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á skipalögum nr. 66/2021.
Samkvæmt núgilandi skipalögum er heimild til álagningar stjórnvaldssekta er aðeins hjá Samgöngustofu og eingöngu Samgöngustofu er heimilt að ákvarða hvaða brot á lögunum skuli sæta kæru til lögreglu. Skilvirkni eftirlitsins er að mati Samgöngustofu og Landhelgisgæslu Íslands ekki nægjanleg á þennan veg þar sem það er oftast Landhelgisgæslan sem er fyrst upplýst um brot á lögunum.
Til að auka skilvirkni í beitingu sektarúrræðis skipalaga áformar því innviðaráðuneytið að færa heimildir til að leggja á stjórnvaldssektir frá Samgöngustofu og til Landhelgisgæslu Íslands fyrir ákveðin brot á lögunum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa samgangna
katrin.palsdottir@irn.is