Til umsagnar
6.–15.5.2026
Í vinnslu
16.5.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-82/2026
Birt: 6.5.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að reglugerð
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Kynning á nýrri reglugerð um afhendingu og vinnslu farþegaupplýsinga í löggæslutilgangi.
Reglugerð þessi kveður á um skyldu flytjenda til að afhenda stjórnvöldum upplýsingar um farþega og áhöfn í millilandaflutningum, sem og um söfnun, vinnslu, miðlun og varðveislu slíkra upplýsinga. Markmið reglugerðarinnar er að efla landamæravörslu og stuðla að skilvirkari greiningu og rannsóknum vegna alvarlegra brota, einkum tengdum skipulagðri brotastarfsemi.
Í reglugerðinni er mælt fyrir um að komið verði á fót sameiginlegri farþegaupplýsingadeild lögreglu og tollyfirvalda sem annast móttöku og vinnslu upplýsinga í sérstöku rafrænu kerfi. Nánar er kveðið á um hvaða upplýsingar skuli afhenda (API og PNR gögn), hvenær afhending skuli fara fram og með hvaða hætti.
Jafnframt er fjallað um heimildir til vinnslu og miðlunar upplýsinga, bæði innanlands og til erlendra yfirvalda, með það að markmiði að koma í veg fyrir, rannsaka og saksækja fyrir alvarleg brot. Sérstök áhersla er lögð á vernd persónuupplýsinga, meðal annars með skýrum reglum um aðgangsstýringu, öryggi gagna og hámarks geymslutíma.
Loks er kveðið á um eftirlit með framkvæmd reglugerðarinnar og viðurlög við brotum á afhendingarskyldu.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa alþjóðamála
kjartan.olafsson@dmr.is