Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 5.–19.5.2026

2

Í vinnslu

  • 20.5.–24.6.2026

3

Samráði lokið

  • 25.6.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-81/2026

Birt: 5.5.2026

Fjöldi umsagna: 4

Annað

Heilbrigðisráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Drög að skýrslu heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd lýðheilsustefnu til fimm ára, 2026–2030

Niðurstöður

Allar umsagnir voru teknar til skoðunar og mat lagt á þær. Umrædd skýrsla var lögð fram á 157. löggjafarþingi.

Málsefni

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að skýrslu um aðgerðaáætlun lýðheilsustefnu til næstu fimm ára í samræmi við lýðheilsustefnu til ársins 2030.

Nánari upplýsingar

Í lýðheilsustefnu til ársins 2030, sem var samþykkt á Alþingi í júní 2021, er mörkuð metnaðarfull framtíðarsýn í lýðheilsumálum. Í stefnunni kemur fram að heilbrigðisráðherra leggi árlega fram á Alþingi aðgerðaáætlun til fimm ára sem dregur fram forgangsröðun í lýðheilsustefnu stjórnvalda. Þetta er fjórða aðgerðaáætlun lýðheilsustefnu sem er lögð fyrir Alþingi og gildir hún fyrir árin 2026 til og með 2030. Árlega verður forgangsröðun aðgerða endurmetin í takt við samþykkt fjárlög frá Alþingi.

Í lýðheilsustefnu eru sett fram sjö lykilviðfangsefni með stefnumiðum sem eiga að varða þá leið sem nauðsynlegt er að feta til að styrkja stoðir lýðheilsustarfs á Íslandi og horft er til við uppbyggingu aðgerðaáætlunar:

1. Forysta til árangurs.

2. Rétt þjónusta á réttum stað.

3. Fólkið í forgrunni.

4. Virkir notendur.

5. Skilvirk þjónustukaup.

6. Gæði í fyrirrúmi.

7. Hugsað til framtíðar.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa heilbrigðisþjónustu

hrn@hrn.is