Til umsagnar
29.4.–30.6.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-79/2026
Birt: 29.4.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Innviðaráðuneytið
Sveitarfélög og byggðamál
Innviðaráðuneytið leggur fram drög að frumvarpi til breytinga á lögum um Byggðastofnun nr. 106/1999 til umsagnar og almennra athugasemda.
Lög um Byggðastofnun eru frá 1999 og þarfnast lagfæringa við. Bæta þarf orðalag laganna sem er oft á tíðum ekki í samræmi við breytta tíma. Þannig eru atvinnuþróunarfélög ekki lengur til, heldur landshlutasamtök sveitarfélaga svo dæmi sé tekið. Þá vantar persónuverndarákvæði inn í lögin. Byggðastofnun er lánastofnun og ber að hafa stjórn og því verður ekki lagt til að stjórnin verði lögð niður en skoðað verður hvort rétt sé að fækka stjórnarmönnum. Þá verður lagt til að skerpt verði á sjálfstæði stofnunarinnar í póstmálum.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála
irn@irn.is