Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 29.4.–13.5.2026

2

Í vinnslu

  • 14.5.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-78/2026

Birt: 29.4.2026

Fjöldi umsagna: 8

Drög að reglugerð

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Breyting á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir

Málsefni

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leggur til breytingar á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 830/2022.

Nánari upplýsingar

Breytingin felst í því að bæta við fleiri tegundum atvinnustarfsemi í skráningu í stað starfsleyfis, og er lagt til að starfsemi jarðbora undir 1 MW og osteopatar bætist við reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur.

Skráning felur í sér skráningu tiltekins atvinnurekstrar sem tiltekinn er í viðauka reglugerðarinnar í miðlæga rafræna gátt í stað starfsleyfisskyldu. Skráning er ekki auglýst í fjórar vikur líkt og starfsleyfi og ekki er gefin út greinargerð fyrir skráningu. Skráning er ótímabundin en starfsleyfi er gefið út til tiltekins tíma. Ef starfsemi er bæði starfsleyfisskyld og skráningarskyld þá vegur starfsleyfisskyldan þyngra en skráningin og aðeins þarf að sækja um starfsleyfi.

Með nýlegum lögum um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla, sem samþykkt voru á Alþingi þann 27. mars sl., varð sú breyting að í stað þess að gerð sé krafa um starfsleyfi vegna hverrar jarðborunarframkvæmdar er jarðborinn sjálfur starfsleyfisskyldur og hver jarðborun tilkynningarskyld. Jafnframt varð sú breyting að starfsemi osteopata var bætt við viðauka IV laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Breytingin á reglugerð nr. 830/2022 sem nú er kynnt í Samráðsgátt felur í sér að smærri jarðborar, þ.e. borar sem eru undir 1 MW, verða skráningarskyldir í stað þess að gerð sé krafa um starfsleyfi. Jafnframt felur breytingin í sér að starfsemi osteopata er gerð skráningarskyld í stað þess að gerð sé krafa um starfsleyfi, en nú þegar er starfsemi sjúkraþjálfara og kírópraktora skráningarskyld, og er því talið rétt að það sé starfsemi osteopata einnig.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (11)

Umsjónaraðili

Skrifstofa umhverfisgæða

urn@urn.is