Til umsagnar
22.4.–22.5.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-77/2026
Birt: 22.4.2026
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Heilbrigðisráðuneytið
Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar áform um frumvarp til heildarendurskoðunar á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, nr. 55/1996.
Heilbrigðisráðherra áformar að gera breytingar á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, nr. 55/1996.
Með frumvarpinu verða lagðar til ýmsar breytingar á lögununum í ljósi sjónarmiða um gæði og öryggi tæknifrjóvgunarþjónustu, jafnréttis, réttar þeirra barna sem getin eru með gjafafrumum til að þekkja uppruna sinn og einföldunar regluverks.
Meðal þeirra breytinga sem fyrirhugaðar eru má nefna að brýnt er að setja ákvæði sem takmarkar notkun kynfrumna úr sama einstaklingi til að draga úr hættu á of nánum skyldleika en vegna smæðar íslensku þjóðarinnar ætti að takmarka notkun kynfrumna úr sama einstaklingi við að úr verði börn í einungis einni fjölskyldu eða tveimur að hámarki. Þá er eðlilegt að endurskoða kröfu laganna um að sambúð eða hjúskapur sé skilyrði fyrir því að einstaklingar geti staðið saman að tæknifrjóvgun í þeim tilgangi að búa til barn með vísan til jafnréttis og til að koma til móts við breytta samfélagsgerð. Í lögum um tæknifrjóvgun eru nafnlausar gjafir kynfrumna ekki óleyfilegar en full ástæða er til að endurskoða það í ljósi réttinda barna og fólks sem getin eru með gjafafrumum og rétt þeirri á að fá upplýsingar um líffræðilegan uppruna sinn. Það er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að sífellt verða þekktir fleiri erfðasjúkdómar þar sem þörf er á að rekja þá meðal skyldra.
Þá eru önnur atriði sem þarfnast skoðunar og samráðs. Í því sambandi má nefna bann laganna við gjöf fósturvísa og veitingu leyfis til tæknifrjóvgunarþjónustu en samkvæmt lögum um tæknifrjóvgun veitir heilbrigðisráðuneytið heilbrigðisstofnun leyfi til að framkvæma tæknifrjóvgun en almennt veitir embætti landlæknis leyfi til reksturs heilbrigðisþjónustu, sbr. 6. gr. laga um landlækni og lýðheilsu.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa stjórnsýslu
kristin.gudmundsdottir@hrn.is