Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 21.4.–12.5.2026

2

Í vinnslu

  • 13.5.2026–

Samráði lokið

Mál nr. S-76/2026

Birt: 21.4.2026

Fjöldi umsagna: 6

Drög að reglugerð

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Reglugerð um tilkynningarskyldu vegna færanlegrar starfsemi

Málsefni

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að breytingu á reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, nr. 550/2018.

Nánari upplýsingar

Með lögum um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála, sem samþykkt voru á Alþingi þann 27. mars sl. kom m.a. inn ný grein, 14. gr. a, í lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Ákvæðið fjallar um tilkynningarskyldu vegna færanlegrar starfsemi um staðsetningu fyrirhugaðrar starfsemi og áætlaðan verktíma. Þá kemur fram í ákvæðinu að ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um form og efni tilkynningar, þar á meðal um um tilkynningarfrest.

Með reglugerðarbreytingu á reglugerð nr. 550/2018 er sett inn ákvæði um form og efni slíkrar tilkynningar og kemur m.a. fram að tilkynning skal send eftirlitsaðila að jafnaði með fjögra vikna fyrirvara.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (11)

Umsjónaraðili

Skrifstofa umhverfisgæða

urn@urn.is