Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 16.–30.4.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-74/2026

Birt: 16.4.2026

Fjöldi umsagna: 1

Drög að reglugerð

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fjölskyldumál

Drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins

Málsefni

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir til umsagnar drög að reglugerð um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins.

Nánari upplýsingar

Lagt er til að sett verði ný reglugerð um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins, á grundvelli 3. mgr. 21. gr. laga um fatlað fólk með fjölþættar stuðningsþarfir, nr. 38/2018, og 3. mgr. 7. gr., sbr.4. mgr. 79. og 5. mgr. 80. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002.

Drögin fjalla m.a. um skilgreiningu barna með fjölþættar stuðningsþarfir, upphaf og vinnslu mála hjá sérfræðingateymi, ákvörðun um vistun barna í sérhæft úrræði á vegum ríkisins og endurmat á þörf fyrir vistun í slík úrræði.

Markmið reglugerðarinnar er að skýra nánar hvaða börn teljast hafa fjölþættar stuðningsþarfir og í þörf fyrir vistun utan heimilis í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins. Þá er jafnframt kveðið á um skýra málsmeðferð vegna slíkra ákvarðana, m.a. hlutverk sérfræðingateymis, sem metur þörf fyrir vistun. Reglugerðin felur í sér útfærslu á samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga þar sem ríkið tekur að sér aukna ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun sérhæfðrar þjónustu vegna barna sem þarfnast búsetu utan heimils og hafa verið metin í þörf fyrir þjónustu á þriðja stigi.

Reglugerðin tekur til barna sem glíma við flókinn og samsettan vanda sem krefst samsettrar þjónustu. Gert er ráð fyrir að vistun í sérhæfðu vistunarúrræði sé aðeins heimil þegar önnur úrræði innan heimilis og í nærumhverfi barnsins hafa verið fullreynd.

Í reglugerðinni er meðal annars að finna skilgreiningar á hugtökunum barn með fjölþættar stuðningsþarfir, sérhæfð vistunarúrræði og hlutverki sérfræðingateymis samkvæmt reglugerðinni. Þá er einnig kveðið á um málsmeðferð , sem er undanfari vistunar barna í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins, svo sem upphaf og vinnslu máls, þátttöku barns og foreldra, ákvörðun sérfræðingateymis, framkvæmd vistunar, endurmat á þörf fyrir vistun og eftirlit með þjónustu í úrræðum.

Reglugerð þessi er liður í að skýra málsmeðferð og afmarka betur þann hóp barna sem fellur undir framangreint samkomulag, þar sem hagsmunir barnsins eru ávallt hafðir að leiðarljósi í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands um réttindi barna og fatlaðs fólks.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (5)

Umsjónaraðili

Skrifstofa barnamála

mrn@mrn.is