Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 8.4.–10.5.2026

2

Í vinnslu

  • 11.5.2026–

Samráði lokið

Mál nr. S-70/2026

Birt: 8.4.2026

Fjöldi umsagna: 3

Stöðumat og valkostir

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Kynjuð fjárlagagerð: Stöðumat og valkostir

Málsefni

Þessi grænbók um kynjaða fjárlagagerð er undanfari að gerð áætlunar sem tekur við af fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð 2019–2023.

Nánari upplýsingar

Innleiðing kynjaðrar fjárlagagerðar á Íslandi hófst árið 2009 og frá árinu 2011 hefur verið unnið eftir sérstakri áætlun um kynjaða fjárlagagerð. Kynjuð fjárlagagerð var lögfest með lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, þar sem annars vegar er kveðið á um að fjármála- og efnahagsáðherra, í samráði við ráðherra jafnréttismála, hafi forystu um að gerð verði áætlun um kynjaða fjárlagagerð sem höfð skuli til hliðsjónar við gerð frumvarps til fjárlaga. Hins vegar að í frumvarpi til fjárlaga skuli gerð grein fyrir áhrifum þess á markmið um jafna stöðu kynjanna.

Kynjuð fjárlagagerð er ferli þar sem samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða er beitt á fjárlagaferlið á öllum stigum. Kynjasjónarmið eru þannig fléttuð inn í stefnumótun og ákvarðanatöku og leitast er við að greina kynjaáhrif fjárlaga. Kynjuð fjárlagagerð hefur það að markmiði að stuðla að jafnrétti, betri nýtingu opinbers fjár og almennri velferð.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa opinberra fjármála

fjr@fjr.is