Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 2.6.–14.8.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-63/2026

Birt: 2.6.2026

Fjöldi umsagna: 6

Drög að reglugerð

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Örorka og málefni fatlaðs fólks

Drög að reglugerð um aðstoðarmannakort fatlaðs fólks

Málsefni

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um aðstoðarmannakort fatlaðs fólks

Nánari upplýsingar

Reglugerð þessari er ætlað að gilda um útgáfu og notkun samræmdra aðstoðarmannakorta fyrir fatlað fólk. Kortin eru skilríki sem sveitarfélög gefa út til fatlaðs fólks frá 15 ára aldri, og þau staðfesta að handhafi þeirra skuli fá notið aðstoðar við þátttöku í viðburðum á vegum ríkis og sveitafélaga, án þess að greiða þurfi aðgangseyri fyrir aðstoðarmann. Sama gildir um þjónustu sem ríki eða sveitarfélög veita gegn greiðslu aðgangseyris.

Markmið með reglugerðinni er að stuðla að auknu jafnrétti í þjónustu við fatlað fólk og tryggja að fatlað fólk geti sótt viðburði og þjónustu á vegum ríkis og sveitarfélaga til jafns við aðra, án þess að þurfa að greiða aðgangseyri vegna aðstoðarfólks. Kortið skal gilda fyrir alla handhafa á landsvísu, óháð búsetu.

Reglugerðin er sett með stoð í 4. mgr. 8. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, með síðari breytingum.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (16)

Umsjónaraðili

Skrifstofa félagsmála

frn@frn.is