Til umsagnar
19.3.–2.4.2026
Í vinnslu
3.4.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-61/2026
Birt: 19.3.2026
Fjöldi umsagna: 1
Drög að reglugerð
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Örorka og málefni fatlaðs fólks
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um endurgreiðslu ríkissjóðs á kostnaði vegna leiðsöguhunda við ferðalög notenda erlendis.
Reglugerð þessari er ætlað að gilda um endurgreiðslu ríkissjóðs á kostnaði sem fellur til vegna leiðsöguhunds þegar notandi hans, með lögheimili á Íslandi, ferðast erlendis með hundinn. Ákvæði reglugerðarinnar ná til leiðsöguhunda sem Sjónstöðin hefur úthlutað sem hjálpartæki á grundvelli 8. gr. a laga um Sjónstöðina, nr. 160/2008, og reglugerðar nr. 233/2010.
Markmið reglugerðarinnar er að tryggja að kostnaður sem fellur til vegna leiðsöguhunda þegar notendur þeirra ferðast erlendis, og er tilkominn vegna skilyrða sem mælt er fyrir um í reglugerðum Matvælastofnunar um innflutning hunda og katta, nr. 200/2020, og um einangrun og einangrunarstöðvar fyrir gæludýr, nr, 201/2020, falli ekki á notendur sjálfa, heldur greiðist úr ríkissjóði eftir því sem nánar greinir í reglugerðardrögunum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa félagsmála
frn@frn.is