Til umsagnar
11.–25.3.2026
Í vinnslu
26.3.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-60/2026
Birt: 11.3.2026
Fjöldi umsagna: 2
Drög að reglugerð
Utanríkisráðuneytið
Utanríkismál
Utanríkisráðuneytið birtir til umsagnar drög að nýrri reglugerð um starfsemi netöryggissveitar (CERT-IS) sem kemur í stað núgildandi reglugerðar um sama efni nr. 480/2021.
Til umsagnar eru drög að nýrri reglugerð um netöryggissveitina (CERT-IS). Meginefni endurskoðunar gildandi reglugerðar felst í flutningi netöryggissveitarinnar frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins og breytingum á hlutverki og verkefnum hennar í kjölfar breytinga sem gerðar voru á varnarmálalögum nr. 34/2008, auk afleiddra breytinga á lögum um Fjarskiptastofu nr. 75/2021, lögum um fjarskipti nr. 70/2022 og lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða nr. 78/2019.
Með framangreindum lagabreytingum var starfsemi netöryggissveitarinnar flutt frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins. Jafnframt voru netvarnir og netöryggi á sviði varnarmála skilgreind sem lögbundin verkefni sem heyra undir utanríkisráðuneytið. Til að endurspegla þessar breytingar er nauðsynlegt að uppfæra gildandi reglugerð nr. 480/2021 um sama efni.
Þar sem verulegur hluti starfsemi netöryggisveitarinnar helst óbreytt þrátt fyrir flutninginn var ákveðið að fara ekki í endurskrif á öllum ákvæðum reglugerðarinnar heldur var ákvæðum í núverandi reglugerð breytt, svo þau endurspegli þær breytingar sem leiða af flutningi netöryggissveitarinnar. Í drögunum er einungis að finna eina nýja grein, 18. gr. reglugerðarinnar, sem tryggir að þrátt fyrir flutning netöryggisveitarinnar frá Fjarskiptastofu, miðli netöryggissveitin nauðsynlegum upplýsingum til samhæfingarstjórnvalds samkvæmt lögum nr. 78/2019 um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, þegar slíkt á við.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Laga- og stjórnsýsluskrifstofa
los@utn.is