Til umsagnar
6.–16.3.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-58/2026
Birt: 6.3.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Orkumál
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingar á raforkulögum nr. 65/2003.
Markmið frumvarpsins er að styrkja sjálfstæði og valdheimildir Raforkueftirlitsins og tryggja að íslensk löggjöf samræmist að fullu skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum.
Frumvarpsdrögin kveða á um að Raforkueftirlitið muni setja og birta bindandi reglur um viðmið og aðferðir sem liggja til grundvallar gjaldskrárákvörðunum. Með þessu er brugðist við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að gildandi lög gangi of langt í að kveða á um tæknileg atriði, sem samkvæmt EES-rétti eiga að vera á forræði sjálfstæðs eftirlitsaðila.
Frumvarpinu er einnig ætlað að bregðast við dómi Hæstaréttar í máli nr. 2/2024 með því að kveða skýrar á um lagastoð gjaldtöku vegna þjónustu flutningsfyrirtækis, þar á meðal vegna innmötunar raforku á flutningskerfið.
Jafnframt eru skýrðar og styrktar heimildir Raforkueftirlitsins til eftirlits með raforkumarkaði, meðal annars til að samþykkja aðferðarfræði gjaldskráa, gefa út bindandi ákvarðanir og skera úr ágreiningi milli notenda og raforkufyrirtækja.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa orkumála
urn@urn.is