Til umsagnar
2.–26.3.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-56/2026
Birt: 2.3.2026
Fjöldi umsagna: 6
Áform um lagasetningu
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Orkumál
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynni áform um lagasetningu um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks.
Uppbygging flutnings- og dreifikerfis raforku á Íslandi hefur á undanförnum árum tafist verulega, oft vegna ágreinings um eignarnám, umráðatöku og fjárhæð eignarnámsbóta. Áskoranirnar liggja m.a. í núverandi lagaumgjörð sem setur ströng skilyrði fyrir upphafi framkvæmda og dregur úr fyrirsjáanleika. Þá hafa flókin leyfisferli á sviði umhverfis- og orkumála átt þátt í því hve hægt hefur gengið að koma nauðsynlegum innviðaframkvæmdum af stað. Stigin hafa verið skref til einföldunar stjórnsýslu og regluverks en áfram finnast kerfislægar hindranir sem draga þarf úr.
Markmiðið er að stytta afgreiðslutíma og auka fyrirsjáanleika við uppbyggingu raforkuinnviða. Þetta verður m.a. gert með því að tryggja að ágreiningur um bótafjárhæð eða lögmæti eignarnáms verði ekki sjálfkrafa til þess að fresta nauðsynlegum framkvæmdum, að því gefnu að réttindi landeigenda séu tryggð með fullnægjandi hætti.
Áform um lagasetninguna eru opin til samráðs til 26. mars.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa orkumála
urn@urn.is