Til umsagnar
27.2.–15.3.2026
Í vinnslu
16.3.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-55/2026
Birt: 27.2.2026
Fjöldi umsagna: 17
Drög að frumvarpi til laga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Fjölmiðlun
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra leggur til breytingar á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011, sem festi í sessi stuðning við einkarekna fjölmiðla til fimm ára.
Lagt er til að stuðningskerfi við einkarekna fjölmiðla, sem verið hefur við lýði frá 2021, verði framlengt til fimm ára. Skerpt verði á einstaka skilyrðum, með því að við lög um fjölmiðla nr. 38/2011 bætist nýr kafli, X. kafli B. Jafnframt verði veittur viðbótarstuðningur til fjölmiðla sem sinna daglegri fréttaþjónustu í almannaþágu um allt land og uppfylla sértæk skilyrði, m.a. um fjölda starfsmanna, fjölbreytt efnistök með almenna og breiða skírskotun, kosningaumfjöllun á landsvísu og viðbragðsgetu allan sólarhringinn. Gert er ráð fyrir að staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðis fái áfram 20% álag á fjárhæð styrks.
Frumvarpsdrög voru unnin á grundvelli aðgerðaáætlunar fyrir fjölmiðla frá 19. desember 2025. Við vinnslu þess var höfð hliðsjón af athugasemdum fjölmiðla, Blaðamannafélags Íslands o.fl. sem fram komu á samráðsfundum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins í október, nóvember og desember 2025. Einnig var tekið mið af tillögum tveggja vinnuhópa ráðuneytisins 2025 og umsögnum útgefenda fjölmiðla o.fl. sem fram hafa komið í samráði um fjölmiðlafrumvörp fyrri ára. Þá var höfð hliðsjón af norrænum stuðningskerfum við einkarekna fjölmiðla, niðurstöðum Lausnamóts Blaðamannafélags Íslands um framtíð fjölmiðla og blaðamennsku 2025 og athugasemdum í greinargerðum úthlutunarnefndar 2022-2025.
Með því að festa stuðningskerfi í sessi til fimm ára vilja stjórnvöld auka fyrirsjáanleika í rekstri íslenskra fjölmiðla til nánustu framtíðar.
Áætlað er að almennur rekstrarstuðningur verði hækkaður með því að hluta auglýsingatekna RÚV verði veitt til almenna stuðningskerfisins, með þeim fyrirvara að Alþingi ákveður skiptingu fjárheimilda til málefnasviða og málaflokka í fjárlögum ár hvert. Þá er gert ráð fyrir að framlög ríkisins til fjölmiðla verði hækkuð vegna viðbótarstuðnings við fjölmiðla sem sinna daglegri fréttaþjónustu í almannaþágu
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa nýsköpunar, rannsókna og stafrænna mála
mnh@mnh.is