Til umsagnar
27.2.–13.3.2026
Í vinnslu
14.3.–29.6.2026
Samráði lokið
30.6.2026
Mál nr. S-54/2026
Birt: 27.2.2026
Fjöldi umsagna: 8
Drög að frumvarpi til laga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar
Unnið var úr umsögnum og gerðar breytingar í samræmi við ábendingu frá Sýn ehf. sbr. umsögn fyrirtækisins. Frumvarpið var lagt fram á 157. löggjafarþingi en ekki náðist að mæla fyrir því og verður það því endurflutt á 158.löggjafarþingi haustið 2026.
Drög að frumvarpi til breytinga á höfundalögum, nr. 73/1972, sem varðar refsiramma vegna brota gegn höfundalögum.
Með frumvarpinu er lagt til að við 54.gr. höfundalaga bætist ný málsgrein þar sem kveðið er á um að fyrir stórfelld eða ítrekuð brot gegn höfundalögum megi refsing hæst verða 6 ár en samkvæmt gildandi lögum er hámarksrefsing 2 ár.
Færst hefur í aukana að höfundaréttarvörðu efni sé streymt og því miðlað með ólögmætum hætti, einkum í gegnum IP-sjónvarp og svokallaða Plex-myndþjóna. Styrkja þarf viðbrögð lögreglu við ábendingum um stórfelld höfundarréttarbrot og grípa þarf til ráðstafana svo takmarka megi svokallaða sjóræningjastarfsemi á höfundaréttarvörðu efni. Liður í því er að leggja til hækkun á refsiramma höfundalaga þannig að hann endurspegli betur alvarleika stórfelldra brota gegn höfundalögum og sé betra samræmi við refsiramma fyrir samsvarandi brot á Norðurlöndunum og í Evrópusambandinu.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa nýsköpunar, rannsókna og stafrænna mála
mnh@mnh.is