Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 26.2.–12.3.2026

2

Í vinnslu

  • 13.3.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-53/2026

Birt: 26.2.2026

Fjöldi umsagna: 1

Drög að reglugerð

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Vinnumarkaður og atvinnuleysi

Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 54/1995, skráningu, eftirlit og umsjón með lyftum og lyftubúnaði til fólks og vöruflutninga

Málsefni

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 54/1995, skráningu, eftirlit og umsjón með lyftum og lyftubúnaði til fólks og vöruflutninga.

Nánari upplýsingar

Samkvæmt reglugerð um skráningu, eftirlit og umsjón með lyftum og lyftubúnaði til fólks og vöruflutninga, nr. 54/1995, skal eigandi eða sá sem hefur með höndum rekstur lyftu gera þjónustusamning við viðurkenndan umsjónarmann (þjónustuaðila) um eftirlit, viðhald og viðgerðir viðkomandi lyftu. Tíðni eftirlits og fyrirkomulag skal tilgreint í samningi, en þó skal gera ráð fyrir að umsjónarmaður þjónusti lyftuna minnst fjórum sinnum á ári. Því til viðbótar er gert ráð fyrir að Vinnueftirlit ríkisins sjái um að árlega sé framkvæmd skoðun á öllum lyftum.

Bent hefur verið á að tíðni eftirlits með hjólastólalyftum geti valdið miklum kostnaði, ekki síst fyrir þá einstaklinga sem þurfa á slíkum lyftum að halda á heimilum sínum. Í reglugerðardrögunum er því lagt til að nægilegt verði að í samningi sé gert ráð fyrir að lyfta sé þjónustuð af þjónustuaðila einu sinni á ári þegar um er að ræða hjólastólalyftu. Þá er lagt til að nægilegt verði Vinnueftirlitið skoði slíkar lyftur annað hvert ár.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa vinnumarkaðar

frn@frn.is