Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 20.–27.2.2026

2

Í vinnslu

  • 28.2.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-49/2026

Birt: 20.2.2026

Fjöldi umsagna: 4

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum (verndarsamkomulag ESB)

Málsefni

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum til að innleiða verndarsamkomulag ESB

Nánari upplýsingar

Evrópusambandið (ESB) samþykkti þann 14. maí 2024 verndar- og fólksflutningasamkomulag Evrópusambandsins (e. Pact on Migration and Asylum), sem samanstendur af tíu gerðum sem koma samtímis til framkvæmda á Schengen-svæðinu þann 12. júní 2026. Meginmarkmið verndarsamkomulagsins er að styrkja stjórn á ytri landamærum Schengen-svæðisins, samhæfa aðgerðir lögregluyfirvalda og efla skilvirkni við afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd.

Ísland er skuldbundið til að innleiða þann hluta verndarsamkomulagsins sem telst til þróunar á Schengen regluverkinu og sem fellur undir alþjóðlegar skuldbindingar sem leiða af samningi milli Evrópusambandsins, lýðveldisins Íslands og konungsríkisins Noregs, frá 19. janúar 2021, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki beri ábyrgð á beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki Evrópusambandsins, á Íslandi eða í Noregi. Nánar tiltekið ber að innleiða reglugerð (ESB) 2024/1351 um stjórnun verndar- og fólksflutningsmála (AMMR-reglugerðin), reglugerð (ESB) 2024/1358 um evrópska fingrafarargrunninn (Eurodac-reglugerðin) og reglugerð (ESB) 2024/1359 um að taka á neyðarástandi á landamærum (neyðarástandsreglugerðin).

Samningurinn tengir Ísland og Noreg við framkvæmd svonefnds Dyflinnarsamnings, ásamt þeim réttarreglum sem ESB hefur sett í tengslum við framkvæmd hans, auk þátttöku í þeim kerfum sem nauðsynleg eru til að framfylgja samningnum, þar á meðal evrópska fingrafaragrunninum Eurodac.

Með frumvarpinu er lagt til að ákvæði reglugerðanna sem eru skuldbindandi fyrir Ísland verði lögfest, nánar tiltekið III., V. og VII. kafli AMMR-reglugerðarinnar, ákvæði 12. og 13. gr. neyðarástandsreglugerðarinnar ásamt 1.–6. gr. þeirrar reglugerðar að því marki sem þær tengjast 12. og 13. grein og Eurodac-reglugerðina, að undanskildum VII., VIII. og VIX. kafla. Auk þess er lagt til að gerðar verði aðrar nauðsynlegar breytingar á lögum um útlendinga og lögreglulögum til að tryggja framkvæmd reglugerðanna hér á landi og veita tilteknum ákvæðum þeirra skýra lagastoð. Frumvarpið miðar að því að draga úr áframhaldandi för einstaklinga innan Schengen svæðisins ásamt því að stuðla að skilvirkari málsmeðferð.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (6)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa alþjóðamála

dmr@dmr.is