Til umsagnar
18.2.–4.3.2026
Í vinnslu
5.3.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-46/2026
Birt: 18.2.2026
Fjöldi umsagna: 21
Annað
Heilbrigðisráðuneytið
Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana.
Í ágúst 2025 fól heilbrigðisráðherra breiðum hóp hagaðila að uppfæra aðgerðaætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana sem gilti til ársloka 2025. Vinna hópsins fór fram með þeim hætti að stuðst var við stefnu um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga til ársins 2030 og byggt á sjö köflum heilbrigðisstefnunnar. Hver aðgerð var rýnd og uppfærð af hópnum miðað við stöðuna nú og framtíðarhorfum velt upp. Í nóvember var haldin vinnustofa með hópnum þar sem unnið var að nýjum aðgerðum sem mögulega ættu erindi í áætlunina.
Endanleg útgáfa er unnin af og á ábyrgð heilbrigðisráðuneytis og samþykkt af heilbrigðisráðherra. Framkvæmd aðgerða og fjármögnun verkefna sem ekki eru hluti af núverandi fjármögnun þjónustuveitenda verða til skoðunar innan ráðuneytisins svo tryggja megi framgang þeirra.
Athygli er vakin á því að frestur til að skila umsögnum í samráðsgátt er til 4. mars næstkomandi.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa heilbrigðisþjónustu
hrn@hrn.is