Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 13.–25.2.2026

2

Í vinnslu

  • 26.2.–21.6.2026

3

Samráði lokið

  • 22.6.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-42/2026

Birt: 13.2.2026

Fjöldi umsagna: 3

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Fulllnusta refsinga - brottvísun og afplánun erlendra fanga

Niðurstöður

Áform um lagasetninguna voru birt í Samráðsgátt sjá mál S-42/2006. Engin umsögn barst um áformin. Þrjár umsagnir bárust um frumvarpið og er gerð grein fyrir þeim í greinargerð frumvarpsins. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 5. mars 2026 og samþykkt sem lög 1. júní 2026.

Málsefni

Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um fullnustu refsinga

Nánari upplýsingar

Um er að ræða drög að frumvarpi til breytinga á lögum um fullnustu refsinga nr. 15/2016. Frumvarpið felur í sér endurskoðun á ákvæðum laganna sem varða reynslulausn og fullnustu refsinga utan fangelsa, í þeim tilvikum þar sem fyrir liggur að erlendum föngum með lítil eða engin tengsl við Ísland verði brottvísað í kjölfar afplánunar.

Lögð er til tímabundin heimild til 1. júlí 2027 til að veita erlendum föngum, sem endanlega hefur verið ákveðið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn í stað helmings samkvæmt gildandi lögum. Við reynslulausn verður viðkomandi vísað úr landi þegar í stað.

Á sama tíma er lagt til að þeir sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi geti ekki afplánað refsingu á áfangaheimili eða undir rafrænu eftirliti. Slík úrræði eiga aðeins við þegar markmiðið er aðlögun að íslensku samfélagi, sem á ekki við um þá sem ljóst er að hafi engin eða lítil tengsl við landið og muni yfirgefa landið að afplánun lokinni.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa réttarfars

dmr@dmr.is