Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 13.–27.2.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-41/2026

Birt: 13.2.2026

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vinnumarkaður og atvinnuleysi

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996 (afnám áminningarskyldu o.fl.)

Málsefni

Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 (afnám áminningarskyldu o.fl.)

Nánari upplýsingar

Frumvarpið hefur það að markmiði að bæta þjónustu við almenning og efla mannauð ríkisins. Starfsfólk ríkisins gegnir lykilhlutverki við að veita góða opinbera þjónustu. Þáttur í því að efla mannauð ríkisins er að stuðla að stefnumiðaðri mannauðsstjórnun sem getur lagað sig að síbreytilegu umhverfi. Þannig verður til eftirsóknarvert starfsumhverfi og jákvæð vinnustaðamenning. Samhliða vandaðri stjórnun mannauðsmála er mikilvægt að stofnanir ríkisins geti skapað starfsfólki heilbrigt og öruggt starfsumhverfi.

Meginbreytingin sem lögð er til í frumvarpinu felst í því að fella brott skyldu til að veita starfsmanni eða embættismanni formlega áminningu áður en til uppsagnar eða lausnar um stundarsakir getur komið. Gert er ráð fyrir að áður en til uppsagnar komi verði samskipti við viðkomandi starfsmann, t.a.m. í formi leiðbeinandi samtala eða tilmæla. Þó kunna að vera aðstæður þar sem slíkt á ekki við. Þá er lögð áhersla á mikilvægi reglulegrar endurgjafar til starfsmanna. Ekki er lagt til að hrófla við þeirri réttarvernd opinbers starfsfólks sem felst í því að ákvörðun um uppsögn eða lausn embættismanna um stundarsakir telst stjórnvaldsákvörðun samkvæmt stjórnsýslulögum þó möguleg undanfarandi tilmæli séu það ekki. Í reglulegum starfsmannasamtölum sem snúa að afmörkuðum atriðum eða verkefnum verður einnig unnt að koma á framfæri jákvæðum athugasemdum við starfsmann. Lögð verður áhersla á uppbyggilegar aðferðir til að leiðbeina starfsfólki í stað íþyngjandi áminningarferlis.

Lagðar eru til breytingar á ákvæðum laganna um embættismenn. Lagt er til að embættismanni sem hefur verið veitt lausn um stundarsakir verði greidd föst laun í stað hálfra launa á meðan mál hans er rannsakað af nefnd sérfróðra manna. Að auki verði kostnaður embættismanns vegna lögmannsaðstoðar fyrir nefndinni greiddur af hlutaðeigandi stjórnvaldi samkvæmt mati nefndarinnar verði niðurstaða hennar embættismanni í vil. Jafnframt er lagt til að setningartími í embætti vegna fjarveru skipaðs embættismanns verði lengdur úr einu ári í tvö ár og heimilað verði að setja í embætti í allt að sex mánuði vegna skipulagsbreytinga eða þegar embættismaður hefur verið fluttur í annað embætti. Lögð er til sérstök heimild til setningar í embætti á meðan skipuðum embættismanni er veitt launalaust leyfi vegna annarra starfa. Lagðar eru til breytingar á auglýsingaskyldu og veitt undanþága frá henni þegar verið er að leggja niður eða sameina stofnanir eða flytja verkefni á milli stofnana. Lagt er til að fallið verði frá skyldu til að birta auglýsingar um laus embætti í Lögbirtingablaði. Að síðustu eru lagðar til nokkrar tæknilegar breytingar sem fela í sér að kveðið verði á um að laun skuli greidd út fyrsta dag mánaðar í stað fyrsta virka dag og upptalning embættismanna sem taka laun skv. kjarasamningum, sbr. 1. mgr. 39. gr. lagfærð.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (11)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa kjara- og mannauðsmála

fjr@fjr.is