Til umsagnar
13.2.–12.3.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-40/2026
Birt: 13.2.2026
Fjöldi umsagna: 0
Annað
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um mótun ungmennastefnu sem á að lýsa því hvernig stjórnvöld styðja við ungmenni og tryggja þeim raunveruleg tækifæri, réttindi og rödd í samfélaginu.
Áformað er að móta ungmennastefnu Íslands fyrir árin 2026-2033 samkvæmt stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá 21. desember 2024. Um er að ræða fyrstu heildstæðu ungmennastefnu á Íslandi. Markmiðið með gerð stefnunnar er að ná utan um þau málefni stjórnvalda sem snúa að ungmennum og að stefna stjórnvalda í þeim málaflokknum sé skýr, sbr. upptalning hér að neðan. Þá er stefnunni einnig ætlað að tryggja raunverulega þátttöku ungmenna í stefnumótun og varpa ljósi á stöðu og áskoranir ungmenna í landinu.
Áformað er að stefnan taki til ungmenna á aldrinum 13-30 ára og verði heildstæð sýn stjórnvalda á málefni er snúa að lífi og þroska ungmenna á aldursbilinu. Á þessum árum eru börn og ungmenni að auka sjálfstæði sitt og stíga sín fyrstu skref inn í fullorðinsárin og mikilvægt er að grípa til aðgerða sem stuðla að því að þau verði virkir þátttakendur í íslensku samfélagi. Ungmennastefnan mun stuðla að jöfnum tækifærum óháð uppruna, kyni, fötlun eða búsetu og byggir einnig upp aukna farsæld, aukið traust og samfélagslega samheldni.
Stefnan mun fjalla um eftirfarandi málefni þar sem kortleggja á hvar stjórnvöld eru stödd í málaflokknum og hvað stjórnvöld geta gert betur í viðkomandi málaflokki:
- Réttindi og virk þátttaka ungmenna í samfélaginu
- Menntakerfið
- Íþróttir, tómstunda- og félagsstarf, menning og listir
- Heilbrigðiskerfi, heilsa, vellíðan, velferð og öryggi
- Atvinna og tækifæri
- Að eignast heimili og barneignir
- Alþjóðlegt samstarf
- Annað?
Stefnan verður unnin í góðu samráði við ungmenni um land allt, m.a. í gegnum ýmis félög og ráð. Samráð verður bæði viðhaft í rafrænu formi í samráðsgátt Stjórnvalda og í persónu.
Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur skóla, félagsmiðstöðvar, ungmennahús, félagasamtök og aðra aðila sem vinna með ungmennum til þess að nýta áformaskjölin í samtal við ungmenni og gefa þeim tækifæri til þess að ræða málefnin og koma sínum skoðunum á framfæri.
Ungmennastefnan verður stefna stjórnvalda í málefnum ungmenna en í því felst að skýrt verður hvernig stjórnvöld ætla að styðja við einstaklinga og samfélög þannig að allir geti verið virkir þátttakendur í lýðræðislegu samfélagi á eigin verðleikum og sem hluti af velferðarsamfélagi.
Mennta- og barnamálaráðuneytið fagnar samráði við alla hópa um málefnið og mun starfshópur um ungmennastefnu taka allar ábendingar til skoðunar í þeirri vinnu sem fram undan er.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa barnamála
mrn@mrn.is